Fjárhagslegt ofbeldi og eldra fólk
Allir geta lent í svikum, en:
Eldra fólk á oft meira sparifé en yngra fólk og því er tapið oft meira en hjá yngri fólki.
Eldra fólk á almennt meiri eignir en yngra fólk og erþar af leiðandi með betra lánshæfismat sem getur leitt til þess að svik séu fjármögnuð með lántöku.
Eldra fólk getur sótt um útgreiðslu á lífeyri, fær stundum óvæntan arf eða slysabætur. Ef þessum fjármunum er stolið þá hefur það afgerandi áhrif á lífsgæði næstu ára.
Aðstæður eldra fólks
Eldra fólk ólst ekki upp með þeirri tækni sem er til staðar í dag og hún er sífellt að breytast og heimurinn að verða stafrænni. Eldra fólk er því líklegra til að verða fyrir netsvikum og líka "tækniþjónustu" svikum en þau sem yngir eru. Dæmi er um að svikahrappar hringi og segist vinna fyrir tæknifyrirtæki og að tölva alraða einstaklingsins hafi verði hökkuð. Markmiðið er að taka yfir tölvu viðkomandi með yfirtökuhugbúnaði og stela fjármunum.
Þegar eldra fólk stendur á tímamótum í lífi sínu, er að minnka við sig vinnu eða hætta að vinna þá hefur það meiri frítíma. Þessi breyting og að hitta ekki lengur vinnufélaga getur bæði leitt til einmanaleika og leiða. Þegar fólk er einmana þá er það líklegra að verða fyrir ástarsvikum. Fólki sem leiðist sækir oft á tíðum í aukna spennu, t.d. með að grípa fjárfestingatækifæri sem reynast svo vera svindl.
Almennt þá er fólk útsettara fyrir svikum nokkrum mánuðum eða árum eftir alvarleg slys eða áföll. Slæmt heilsufar getur einnig orðið þess valdandi að eldra fólk þurfi aðstoð ættingja eða annarra til að sjá um fjármál og ef sá einstaklingur er ekki heiðarlegur þá eru fjársvik auðveld við þær aðstæður.
Dæmi um slíkt ofbeldi getur verið t.d. fullorðið barn sem "sér" um fjárhag foreldri síns og uppfyllir skyldur sínar að ákveðnu leyti, t.d. kaupir og sækir lyf, matvörur og fleira fyrir foreldri en stelur jafnframt rafrænum skilríkjum foreldris , tekur lán í þeirra nafni til eigin nota, eða gengur á sparifé foreldrisins.
Þetta skapar mjög erfiðar aðstæður þar sem foreldið er háð barninu og finnst vænt um það og þarf auk fjárhagslegs taps að horfast í augu við svik.
Bankarnir eru með alls konar leiðir til að mæta netsvikum eða til að bregðast við ef grunur um þau vaknar. Þú getur valið það sem er þægilegast fyrir þig, hringja eða senda póst. Hér eru hlekkir á upplýsingar stærstu bankana um það hvernig er hægt að varast netsvik og/eða bregðast við þeim. Mundu að það geta allir lent í netsvikum en það er mikilvægt að bregðast við.
- Smelltu fyrir upplýsingar um netöryggi hjá Íslandsbanka
- Smelltu fyrir upplýsingar um netöryggi hjá Landsbankanum
- Smelltu fyrir upplýsingar um netöryggi hjá Arion banka
Dæmi um fjárhagslegt ofbeldi
Fyrir nokkrum mánuðum síðan fékk Andri símtal frá ókunnum aðila. Spurt var hvort hann vildi styrkja fátæk börn í útlöndum. Andra fannst það sjálfsagt mál og spurði hvað hann gæti gert. Sá sem hringdi bað Andra um kennitölu hans og allar kortaupplýsingar svo hann gæti verið í samskiptum við bankann. Andri trúði þessu og lét aðilann fá þær upplýsingar sem hann þurfti á að halda. Nokkru seinna kom í ljós að þessi aðili hefði notað upplýsingarnar sem Andri gaf honum til þess að taka verulegar fjárhæðir út af kortinu hans.