Fagaðilar

Teikning af starfsumsóknum.

Hér að neðan eru helstu upplýsingar ætlaðar ráðgjöfum, hönnuðum, þjónustuaðilum og öðrum verktökum sem vinna fyrir Reykjavíkurborg. Ætlunin er að síðan virki sem einskonar handbók fyrir alla sem vinna að verkefnum fyrir Reykjavíkurborg. 

Ráðgjafar og hönnuðir

 

Hönnunarleiðbeiningar

Leiksvæði

Gönguþveranir

Hjólreiðar

Borgarlýsing

Grassvæði og trjágróður

Bílastæði

Fylgiskjöl vegna verklegra framkvæmda 

Fylgigögn reikninga 

Skrifstofa framkvæmda og viðhalds krefst ákveðinna fylgigagna með innsendum reikningum. Sérstök framvindu og bókunarblöð eru gefin út af skrifstofunni sem hönnuðir/ráðgjafar og verkeftirlit fylla út. 

Reikninga skal stíla á Reykjavíkurborg-Eignasjóður kt. 570480-0149

Reikningagátt Reykjavíkurborgar má nálgast hér: Senda reikning

Hlutverk ráðgjafa/hönnuða

  • fylla út framvindu og bókunarblað í samræmi við samningsupphæð og láta þær upplýsingar fylgja reikningi, svo reikningur fáist greiddur
    • fylgjast með að kostnaðarstaða ráðgjafavinnu sé í samræmi við samningsupphæð
    • á framvindu kemur fram samningsupphæð/magn umsaminna tíma, hversu margir tímar hafa verið unnir og staðan prósentulega
  • á bókunarblaði eru leiðbeiningar til útfyllingar

Bókunarblað ráðgjafa/hönnuða

Hlutverk verkeftirlits/verktaka

  • fylgjast vel með kostnaði og viðhafa kostnaðargát á öllum stigum verkefnis
  • fylla út og samþykkja/árita fyrirhugaða verkframvindur og bókunarblöð í samráði við verktaka, sem þurfa að berast með reikningi, svo reikningur fáist greiddur
    • á framvindu kemur fram samningsupphæð, hve mikið er greitt fyrir hvern verkþátt ásamt því að sýna prósentulega séð, hvernig staðan er
    • bókunarblað segir til um á hvaða lykla og verkbeiðnanúmer verkefni bókast í bókhald Reykjavíkurborgar
  • annast frá verkbyrjun skiptingu og uppgjör á verk- og eftirlitskostnaði í samstarfi við sameiginlega verkkaupa
  • fylla út og samþykkja auka- og viðbótarverkaskýrslur og reikninga

Bókunarblað verktaka/eftirlits

Almennt skal senda alla reikninga til borgarinnar rafrænt samkvæmt þessum upplýsingum: 
Sjálfvirkir rafrænir reikningar | Reykjavik