Menningarnótt
Menningarnótt, stærsta afmælis- og borgarhátíð Reykjavíkur verður haldin laugardaginn 22. ágúst 2026. Segja má að hátíðin sé hápunktur sumarsins og skemmtilegir viðburðir lita mannlífið í miðborginni frá morgni til kvölds. Hátíðin er fyrir alla borgarbúa og gesti sem vilja taka þátt og skemmta sér. Hefð er orðin hjá mörgum fjölskyldum og vinahópum að mæla sér mót á Menningarnótt og eiga skemmtilegan dag saman.
Vetrarhátíð
Vetrarhátíð verður haldin dagana 4.–7. febrúar 2027 og fer hátíðin fram í öllum sex sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Þessi hátíð ljóss og myrkurs samstendur af Safnanótt, Sundlauganótt og ljósaslóð ásamt yfir 150 viðburðum þar sem fjöldi listamanna tekur þátt í að skapa einstaka stemningu í borginni.
Barnamenningarhátíð
Barnamenningarhátíð í Reykjavík fer fram dagana 20.-26. apríl næstkomandi og er vettvangur hátíðarinnar borgin öll. Fjölbreyttir viðburðir fara fram í grunnskólum, leikskólum, frístundamiðstöðvum, menningarstofnunum, listaskólum og víðar. Barnamenningarhátíðin rúmar allar listgreinar fyrir börn og fjölskyldur þeirra.
17. júní
Á þjóðhátíðardaginn 17. júní verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá. Skrúðganga verður frá Hallgrímskirkju, tónleikar, götuleikhús, dansveisla, sirkus, leiktæki, matarvagnar og fornbílasýningar í Hljómskálagarði og á Klambratúni svo fátt eitt sé nefnt.
Iceland Airwaves
Iceland Airwaves-tónlistarhátíðin er stærsta tónlistarhátíð sem fram fer á Íslandi á hverju ári. Þessi þriggja daga tónlistarveisla er einn af hápunktum ársins í Reykjavík enda iðar borgin af lífi á meðan á hátíð stendur.
Hinsegin dagar
Hinsegin dagar fara fram 4.–9. ágúst í ár en hátíðin er mögulega litríkasta hátíð ársins. Gleðigangan er stærsti viðburður hvers árs en fjölmargt annað er í boði.
Jólaborgin
Á aðventunni fyllist borgin af jólastemingu og jólaljósum. Jólakötturinn mætir á Lækjartorg, jólaljósin tendruð á Olsóartréðnu fyrsta sunnudag í aðventu, jólaljós prýða Austurvöll, jólamarkaður og jólasöngur.
Listahátíð í Reykjavík
Listahátíð í Reykjavík er þverfagleg listahátíð með áherslu á nýsköpun. Hún fer fram í hefðbundnum og óhefðbundnum rýmum um alla borg og teygir sig jafnframt út fyrir borgarmörkin. Hátíðin er tvíæringur og verður haldin næst í júní 2028
Iceland Noir - Reykjavík
Iceland Noir - Reykjavík er alþjóðleg bókmenntahátíð með áherslu á glæpasagnalist og nýsköpun í sagnalist. Hátíðin ger fram 11.-14. nóvember 2026.
Reykjavík Dance Festival
Hátíðin er mikilvægur vettvangur fyrir íslenska danslist sem leggur áherslu á inngildingu og samfélagslega ábyrgð. Hátíðin fer fram dagana 10.-15. nóvember 2026.
Myrkir músíkdagar
Myrkir músíkdagar er framsækin tónlistarhátíð sem styrkir stöðu íslenskra tónskálda og eykur fjölbreytni í menningardagatali borgarinnar. Hátíðin fer fram 28.-31. janúar 2027.
HönnunarMars
Hátíðin hefur sett Reykjavík á heimskortið sem skapandi og framsækna borg, þar sem fjölbreyttar greinar hönnunar og arkitektúrs sameinast í öflugri og faglegri hátíð sem nærir bæði atvinnulíf og samfélag. Hátíðin fer fram um vorið 2026.