Barnamenningarhátíð - Ævintýrahöllin

Ævintýrahöllin

Ævintýrahöll Barnamenningarhátíðar fer fram helgina 25. og 26. apríl.

Ævintýrahöllin hefur í gegnum tíðina flakkað á milli hverfa borgarinnar og árið 2026 mun hún fara fram í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi í Breiðholti. Þar verður sannkallað líf og fjör og er aðgangur  ókeypis. 

Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir börn og aðstandendur þeirra frá klukkan 10:30 til 16:30 báða dagana. 

Auðvelt er að ferðast með almenningssamgöngum í Gerðuberg en þeir strætisvagnar sem stöðva næst Gerðubergi eru númer 3, 4, 12 og 17. Stöðin kallast FB. 

Það liggja reiðhjóla- og göngustígar að Gerðubergi úr öllum áttum og eru hjólagrindur við inngang Gerðubergs. 

Bílastæði við Gerðuberg eru ókeypis. 

Gott aðgengi fyrir öll.