Barnamenningarhátíð - Ævintýrahöllin
Ævintýrahöllin
Ævintýrahöll Barnamenningarhátíðar fer fram helgina 12. og 13. apríl.
Ævintýrahöllin hefur í gegnum tíðina flakkað á milli hverfa borgarinnar og í ár fer hún fram í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Þar verður sannkallað líf og fjör og er aðgangur ókeypis.
Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir börn og aðstandendur þeirra frá klukkan 10:30 til 16:30 báða dagana. Í boði verður fjölskyldujóga, ratleikir, brekkusöngur, dans, sirkus atriði og krakkakarókí svo eitthvað sé nefnt auk þess að hægt verður að heimsækja dýrin.
Auðvelt er að ferðast með almenningssamgöngum í Fjölskyldugarðinn en þeir strætisvagnar sem stöðva næst garðinum eru númer 2, 5, 15 og 17. Stöðin kallast Laugardalshöll.
Það liggja reiðhjóla- og göngustígar að Laugardalnum úr öllum áttum og eru hjólagrindur við inngang Fjölskyldugarðsins.
Bílastæði við Fjölskyldugarðinn eru ókeypis.
Gott aðgengi fyrir öll.