Dagdvöl

Reykjavíkurborg býður eldra fólki upp á dægrastyttingu í Þorraseli, Vesturgötu 7, og dagþjálfun fyrir fólk með heilabilun í Esjutúni, Vitastíg 2, Vitatorgi.  Markmið beggja staða er að fólk njóti félagsskapar, hreyfingar og virkni.

Þorrasel

Í Þorraseli er boðið upp á fjölbreytta tómstundaiðju og virkni, hreyfingu, listsköpun, mat og hvíldaraðstöðu, aðstoð við böðun og heilsufarseftirlit. Sjúkraþjálfun, hársnyrtistofa og fótaaðgerðarstofa eru til staðar fyrir þau sem þess óska. Gestir eru sóttir að morgni og ekið heim síðdegis.

Teikning af fólki að spjalla saman.

Dagdvöl Vitatorgi

Í dagþjálfun á Vitatorgi er boðið upp á fjölbreyttar samverustundir, útiveru störf á vinnustofu og í borðsal, léttar æfingar og ýmislegt fleira sem viðheldur athöfnum daglegs lífs. Lögð er áhersla á að hver einstaklingur njóti sín og finni til öryggis og vellíðunar. Hársnyrtistofa og fótaaðgerðarstofa eru til staðar fyrir þau sem þess óska. Gestir eru sóttir að morgni og ekið heim síðdegis.

Teikning af eldra fólki í sundleikfimi.