Vestnorræni höfuðborgasjóðurinn, stjórn

Teikning af fólki tala saman og vinna við skrifborð.

Stjórn Vestnorræna höfuðborgasjóðsins er skipuð borgarstjórum höfuðborganna þriggja Reykjavík, Tórshavn og Kommuneqarfik Sermersooq (Nuuk) ásamt tveimur kjörnum fulltrúum frá hverri borg. 

Almennt um skipan stjórnar

Hlutverk sjóðsins er að efla samstarf og skilning milli stjórnmálamanna og íbúa í Reykjavík, Tórshavn og Kommuneqarfik Sermersooq (Nuuk) með:

  • fjárveitingum til verkefna á sviði menningar, fræðslu og íþrótta
  • þemaumræðum um pólitísk málefni sem eru ofarlega á baugi í höfuðborgum á Vestur Norðurlöndum.

Sjá nánar í reglum Vestnoræna höfuðborgarsjóðsins.

Skipan fulltrúa Reykjavíkurborgar í stjórn sjóðsins 2022-2026

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri, Dóra Björt Guðjónsdóttir og Kjartan Magnússon borgarfulltrúar sitja í stjórn sjóðsins til loka kjörtímabilsins 2026.

Fulltrúar í stjórn sjóðsins 

Kommuneqarfik Sermersooq (Nuuk)

  • Avaaraq Olsen, borgarstjóri
  • Justus Hansen, borgarfulltrúi
  • Lene Rosengreen Pedersen, borgarfulltrúi

Reykjavík

  • Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri
  • Dóra Björt Guðjónsdóttir, forseti borgarstjórnar
  • Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi

Tórshavn

  • Heðin Mortensen, borgarstjóri
  • Annfinn Brekkstein, borgarfulltrúi
  • Annika Olsen, borgarfulltrúi