Stafrænt Reykjavíkurkort
Hver kannast ekki við ergelsið við að mæta með alla fjölskylduna í sund og uppgötva að sundkortið gleymdist heima? Með stafræna Reykjavíkurkortinu heyrir þetta vandamál sögunni til.
Í stuttu máli
Áskorunin: Aðgangskort að sundlaugum, Ylströnd, söfnum og Fjölskyldu- og húsdýragarðinum voru ekki til á stafrænu formi.
Lausnin: Reykjavíkurkortið er persónulegt stafrænt aðgangskort sem er geymt í símaveski notenda.
Fyrir hver: Alla notendur sem vilja stafrænt aðgengi.
Staða verkefnis: Stafræna Reykjavíkurkortið fór í almenna notkun í apríl 2026.
Áskorunin
Ákall frá íbúum
Handhafar árs- og aðgangskorta að sundlaugum, söfnum og annarri menningarstarfsemi hafa lengi kallað eftir að stafrænu korti í stað hefðbundinna plastkorta. Stór hluti notenda er orðinn vanur að geta greitt fyrir vörur og þjónustu með kortaveskjum í síma og sífellt færri ganga með veski og plastkort á sér dags daglega.
Óljós gildistími
Engin leið var fyrir handhafa að fletta sjálfir upp gildistíma aðgangskorta eða stöðu um notkun. Notendur upplifðu því gjarnan endurnýjun áskrifta sem óvænt útgjöld þegar komið var á staðinn í stað þess að hafa stjórn og yfirsýn.
Daglegt óþarfa aukaáreiti á starfsmenn
Fyrir hvert kort sem gleymist heima eða óvissu um gildistíma þurfa starfsmenn að fletta upp kennitölu. Það tefur fyrir afgreiðslu þeirra sem kaupa staka miða og framkvæmd annarrar þjónustu. Loks bjuggu mismunandi vinnureglur um uppflettingar á starfsstöðum til ósamræmi í þjónustuupplifun notenda.
Hvað er Reykjavíkurkortið?
Reykjavíkurborg býður upp á fjölbreytta menningar- og afþreyingarþjónustu, svo sem sundlaugar og söfn, sem borgarbúar greiða fyrir. Notendur geta keypt árs- og aðgangskort sem hingað til hafa verið gefin út á plasti.
Undanfarin ár hafa 80.000 slík plastkort verið í umferð í Reykjavík á hverjum tíma og um 10.000 ný kort gefin út árlega.
Lausnin: Stafrænt Reykjavíkurkort
17 þjónustustaðir – eitt aðgangskort í símanum
Stafræna Reykjavíkurkortið var sett í loftið á vordögum 2026. Það sameinar áskriftar- og aðgangskort 17 þjónustustaða í Reykjavík í eitt og sama kortið. Kortið er persónubundið aðgangskort þar sem hver og einn velur hvaða þjónusta er virk á kortinu og greiðir fyrir hana samkvæmt gildandi verðskrá.
Stafræn veskislausn
Kortið á heima í símaveski notenda þar sem notendur geta jafnframt fundið upplýsingar um gildistíma og notkun. Stafræna kortið fellur beint inn í þær lausnir sem notendur nota nú þegar í sínu daglega lífi og er því engin þörf á að hlaða niður nýju appi eða læra á ný kerfi.
Svona lítur stafræna kortið út
Samþætting við kerfi borgarinnar
- Reykjavíkurborg gekk til samninga við fyrirtækið PassCreator eftir útboð á stafrænni veskilausn fyrri hluta árs 2025.
- Til þess að hægt væri að nota lausnina þurfti að samþætta hana við kassa- og afgreiðslukerfi og hófst sú vinna haustið 2025.
- Samþættingin reyndist flóknari en gert var ráð fyrir í upphafi og tafðist verkefnið því lítilega.
- Í byrjun árs 2026 var lausnin tilbúin til prófana og á vordögum fór hún í almenna notkun.
- Samhliða verkefninu og til að tryggja árangur þess voru gjaldskrár sundlauga og Fjölskyldu- og húsdýragarðsins einfaldaðar og tóku þær breytingar gildi 5. maí 2026.
Árangur og áhrif
15.000 ný stafræn Reykjavíkurkort á örfáum mánuðum
Í byrjun júlí 2026 höfðu 15.000 stafræn Reykjavíkurkort verið gefin út og daglega bætast 50-100 ný kort við. Þetta þýðir að það eru ekki bara nýir notendur sem velja að fá kortið í símann heldur eru eldri notendur einnig að skipta plastkortum út.
Meiri þægindi fyrir notendur
Með því að hlaða kortinu í símann minnka líkur á að kort gleymist heima með tilheyrandi umstangi og uppflettingum. Notendur geta jafnframt með auðveldum hætti skoðað gildistíma og virkar áskriftir í símanum – þegar þeim hentar.
Betra starfsumhverfi - meiri starfsánægja
Með minna áreiti geta starfsmenn afgreiðslustaða sinnt öðrum mikilvægum störfum sem minni tími gafst í áður. Starfsmenn sundlauga voru ötullir talsmenn fyrir stafrænni kortalausn og má því leiða líkum að því að lausnin skili sér í aukinni ánægju starfsmanna.
Fjárhagslegt hagræði og jákvæð umhverfisáhrif
Kostnaður við hvert útgefið starfrænt Reykjavíkurkort er margfalt lægri en við útgáfu á plastkorti. Fækkun plastkorta styður jafnframt við Grænu skrefin og umhverfisstefnu borgarinnar.
Saga inni í sögu: Einfaldari móttaka nýrra starfsmanna.
- Hjá Reykjavíkurborg starfa að jafnaði um 11 þúsund manns og stór hluti starfsmanna fær áskriftakort að sundstöðum og söfnum borgarinnar sem hluta af hlunnindum í starfi.
- Áður en stafræna Reykjavíkurkortið var tekið í gagnið þurftu stjórnendur að fara í gegnum mismunandi umsóknarferli fyrir hverja áskrift. Í hvert sinn þurfti stjórnandinn að slá inn kennitölu og upplýsingar um starfsmanninn og því mörg lítil handtök tengd hverri ráðningu.
- Með stafræna Reykjavíkurkortinu geta stjórnendur sótt um allt á einum stað og starfsmaðurinn fær kortið með virkum áskriftum beint í símann.
- Ef við ímyndum okkur að starfsmannavelta hjá Reykjavíkurborg sé 10-15% eins og á hinum almenna vinnumarkaði er ljóst að stafræna Reykjavíkurkortið sparar stjórnendum borgarinnar ófá handtök.
Næstu skref
Sjálfsafgreiðsla á netinu
Í framtíðinni er stefnt að því að notendur geti keypt og endurnýjað stafræna Reykjavíkurkortið í sjálfsafgreiðslu á netinu. Slíkt myndi enn frekar létta álagi á starfsfólk og auka þægindi notenda.
Minni pappírssóun
Í sundlaugum borgarinnar prenta starfsmenn, sem dæmi, út pappírsmiða í hvert skipti sem stakur miði er keyptur sem notendur nota til að opna sjálfvirk hlið að búningsklefum. Með sjálfsafgreiðslu á netinu yrðu pappírsmiðar óþarfir fyrir stóran hluta notenda.
Ný og spennandi þjónusta við borgarbúa
Það er hagur allra borgarbúa að nýta fjárfestingu borgarinnar í stafrænum lausnum til fulls og þróa áfram. Með veskislausninni opnast möguleikar á að fella fleiri þjónustuliði borgarinnar undir sama kort sem býður upp á alls kyns nýjungar í þjónustu við borgarbúa.