Upplýsingatækniþjónusta

Upplýsingatækniþjónusta Reykjavíkurborgar (UTR) veitir fjölbreytta þjónustu við notendur og starfseiningar þvert á svið borgarinnar og annast umfangsmikinn miðlægan rekstur tölvukerfa og viðhald fjölmargra upplýsingakerfa.

Hlutverk

Hlutverk upplýsingatækniþjónustunnar er að tryggja rekstrarsamfellu upplýsingatækniinnviða, innkaup á tæknibúnaði, veita tæknilega þjónustu og ráðgjöf á sviði tæknilegra lausna, þróa virðisaukandi þjónustur og styðja við stafræna vegferð borgarinnar.

Markmiðið er að vera með örugga og áreiðanlega upplýsingatækniinnviði á einfaldan og skilvirkan hátt. 

  • Öryggi
  • Heilsa
  • Stjórnun

UTR rekur eina umfangsmestu upplýsingatækniþjónustu landsins, tólf þúsund tölvur og snjalltæki á rúmlega þrjúhundruð starfsstöðvum. Notendur upplýsingatæknibúnaðar eru öll svið og skrifstofur Reykjavíkurborgar, verkfræðingar, borgarfulltrúar, nemendur, kennarar, starfsmenn íþróttamannvirkja, gestir bókasafna og almenningur svo dæmi séu tekin. Kerfin sem UTR ber ábyrgð á eru einnig fjölbreytt. Um er að ræða póstkerfi, afgreiðslukerfi, velferðarkerfi, bókhaldskerfi, umhverfisvöktunarkerfi, fjölmarga vefi og landupplýsingakerfi.

Starfsemi UTR skiptist í deildir:

  • Stoð og tækniþjónusta
  • Kerfisstjórn og tæknirekstur
  • Kerfislausnir og hugbúnaðarþróun

UTR leggur áherslu á að reka traust og öruggt tölvuumhverfi ásamt að veita skjóta og góða þjónustu:

  • UTR styðst við þjónustuyfirlýsingu þar sem þjónustugæði og forgangur er skilgreindur.
  • Starfsemi UTR er vottuð samkvæmt alþjóðlega öryggisstaðlinum ISO 27001.