Upplýsingatækniþjónusta
Upplýsingatækniþjónusta Reykjavíkurborgar (UTR) veitir fjölbreytta þjónustu við notendur og starfseiningar þvert á svið borgarinnar og annast umfangsmikinn miðlægan rekstur tölvukerfa og viðhald fjölmargra upplýsingakerfa.
Hlutverk
Hlutverk upplýsingatækniþjónustunnar er að tryggja rekstrarsamfellu upplýsingatækniinnviða, innkaup á tæknibúnaði, veita tæknilega þjónustu og ráðgjöf á sviði tæknilegra lausna, þróa virðisaukandi þjónustur og styðja við stafræna vegferð borgarinnar.
Markmiðið er að vera með örugga og áreiðanlega upplýsingatækniinnviði á einfaldan og skilvirkan hátt.
- Öryggi
- Heilsa
- Stjórnun
UTR rekur eina umfangsmestu upplýsingatækniþjónustu landsins, tólf þúsund tölvur og snjalltæki á rúmlega þrjúhundruð starfsstöðvum. Notendur upplýsingatæknibúnaðar eru öll svið og skrifstofur Reykjavíkurborgar, verkfræðingar, borgarfulltrúar, nemendur, kennarar, starfsmenn íþróttamannvirkja, gestir bókasafna og almenningur svo dæmi séu tekin. Kerfin sem UTR ber ábyrgð á eru einnig fjölbreytt. Um er að ræða póstkerfi, afgreiðslukerfi, velferðarkerfi, bókhaldskerfi, umhverfisvöktunarkerfi, fjölmarga vefi og landupplýsingakerfi.
Starfsemi UTR skiptist í deildir:
- Stoð og tækniþjónusta
- Kerfisstjórn og tæknirekstur
- Kerfislausnir og hugbúnaðarþróun
UTR leggur áherslu á að reka traust og öruggt tölvuumhverfi ásamt að veita skjóta og góða þjónustu:
- UTR styðst við þjónustuyfirlýsingu þar sem þjónustugæði og forgangur er skilgreindur.
- Starfsemi UTR er vottuð samkvæmt alþjóðlega öryggisstaðlinum ISO 27001.