Göngu- og hjólastígar

Tilgangur göngu- og hjólastígakerfis Reykjavíkurborgar er að gera íbúum og gestum kleift að ferðast hjólandi eða gangandi um borgina á öruggan, skemmtilegan og vistvænan máta. 

Gangbrautarljós

Þú ættir að kannast við bláu ílöngu hnappaboxin sem finna má við mörg gangbrautarljós í borginni. Reykjavík vinnur nú að því að uppfæra öll gangbrautarljós í borginni með uppsetningu samskonar hnappaboxa. Hefur þú verið að pæla í því hvernig þau virka?

Tvær tegundir hnappaboxa

Vissir þú að við umferðarljós eru tvær mismunandi tegundir boxa? Önnur tegundin er með hnappi til að óska eftir grænu ljósi en hin er ekki með neinn hnapp. Boxin sem ekki eru með hnapp eru notuð á gatnamótum, þar sem grænt ljós kemur alltaf upp með reglulegu millibili.

Hnappabox án hnappa?

Hvort sem hnappaboxin eru með eða án hnapps til að óska eftir grænu ljósi, gefa þau frá sér hljóðmerki til að gera blindum og sjónskertum kleift, að greina grænt ljós frá rauðu.

Á nýjustu gerð boxanna er spjald að neðanverðu sem hægt er að þrýsta á og hækka í hljóðmerkinu. Í spjaldinu er einnig titringur fyrir fólk með samþætta sjón og heyrnarskerðingu. Á hlið boxanna er upphleypt kort yfir gatnamótin sem gerir fólki mögulegt að átta sig á fjölda akreina, akstursstefnu umferðar og hvort umferðareyja sé á milli akreina. Aðgengileg umferðaljós í Reykjavík.