Leiðb(einingar) - Related items

Related items / Tengt efni

Related items er notuð til birtingar á tengdu efni eins og skjölum og tenglum.

Hönnun einingarinnar gerir ráð fyrir að hún sé birt neðst (eða neðarlega) á síðu því grá lína er fyrir ofan tengda efnið.

Vinnureglan er að láta tengla innan vefs opnast í sama glugga en tengla utan vefs og skjöl opnast í nýjum flipa.

Mikilvægt er að hafa tenglatexta (Link text) lýsandi en ekki nota URL (slóðir) eða "Sjá nánar hér". Gott er að nota titil síðunnar sem vísað er á innan vefs eða heit stofnunar/fyrirtækis þegar vísað er út fyrir vef Reykjavíkur.

Gefa þarf skjölum lýsandi titil í bakenda því hann birtist óbreyttur í þessari einingu. Þó að skjalið heiti til dæmis "holmsheidi_auglysing.pdf" í þinni tölvu er gott að gefa því titil eins og "Auglýst eftir áhugasömum fyrirtækjum vegna uppbyggingar á Hólmsheiði" í bakenda.