Aðgengi í Laugardalslaug

Upplýsingar um aðkomu, sérklefa, hjólastólaaðgengi, lyftur, aðstöðu við sundlaugar og potta og afslætti í sundlaugum.
Yfirlit
- Sér skiptiklefi og sturta
- Aðgengi án þess að þurfa að fara í almenna klefa
- Lyfta ofan í laug
- Hjólastólaaðgengi að innilaug
- Hjólastólaaðgengi að sjópotti
- Hjólastólaaðgengi að eimbaði
- Göngugrindur
- Salerni eru staðsett í klefum og skiptiklefa
Sérklefar
Sérklefar eru sérstaklega ætlaðir til að taka vel á móti trans fólki (og börnum), þar með talið kynsegin fólki, intersex fólki (og börnum), foreldrum fatlaðra barna og barna sem þurfa sérstaka aðstoð og eru af öðru kyni, fötluðu fólki með aðstoðarmann af öðru kyni, börnum að aðstoða foreldra sem eru af öðru kyni, fólki með heilsufarsvanda, svo sem stóma.
Sérklefar A og B í Laugardalslaug.
Sérklefar C og D í Laugardalslaug.
Afsláttur
Öryrkjar fá aðgang endurgjaldslaust gegn framvísun örorkuskírteinis frá TR en þarf að kaupa kortið. Aldraðir 67 ára og eldri fá einnig aðgang gegn framvísun persónuskilríkja en þarf að kaupa kortið.