Staðreyndir um stöðu kvenna í heiminum
Kveikjur að umræðum í bekknum um jafnrétti og stöðu kvenna í heiminum.
Um verkefnið
Jafnrétti - Aktívismi
Tenging við menntastefnu: Félagsfærni
Gerð efnis: Ítarefni
Markhópur: 9-16 ára nemendur og starfsfólks
Viðfangsefni: jafnrétti kynja, andleg og félagsleg vellíðan,
Nokkrar ástæður fyrir því að við höldum alþjóðlegan baráttudag kvenna 8. mars ár hvert og staðan í veröldinni á árinu 2019
- 62 milljónir stelpna í heiminum fá ekki að ganga í skóla
- Á hverju ári ganga um 15 milljón stelpna undir 18 ára aldri í hjónaband án þess að hafa nokkuð um það að segja sjálfar
- 4 af hverjum 5 fórnarlömbum mansals í heiminum eru stelpur og konur
- Talið er að allt að 70% fólks í láglaunastörfum í heiminum séu konur
- Í Bretlandi sinna útivinnandi mæður að meðaltali 15 klst á viku í heimilisstörf en feður um 5 klst
- Á heimsvísu eru konur með lægri laun en karlar fyrir sömu eða sambærileg stör
- Í Pakistan eru um 500 konur á ári fórnarlömb heiðursmorða
- Í Egyptalandi er tæplega helmingur fórnarlamba nauðgana myrtur vegna þess að nauðguninni fylgir svo mikil skömm fyrir fjölskyldu fórnarlambsins
- 150-300 konur verða fyrir sýruárás á hverju ári í Bangladesh
- Í Nígeríu eru tæplega 15% þeirra sem þurfa að leita læknisaðstoðar vegna kynsjúkdóma stelpur undir 5 ára aldri
- 1 af hverjum 4 körlum í Suður Afríku hefur átt samræði við stúlku undir 18 ára aldri gegn vilja hennar (nauðgað henni)
- Á milli 100 og 140 milljónir stúlkna og kvenna í heiminum hafa gengist undir limlestingu á kynfærum (e. female genital mutilation) Engar læknisfræðilegar aðstæður eru á bak við limlestingu á kynfærum kvenna
- Kynferðisleg árás á sér stað í Bandaríkjunum að meðaltali á 2,5 mínútna fresti
- 1 af hverjum 6 konum í heiminum hefur orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi
- Í heiminum eru kvenkyns forsætisráðherrar eða forsetar tæplega 7%
- Á Íslandi eru konur tæplega 12% forstjórar stærri fyrirtækja.
- Engin kona er forstjóri félags á íslenskum hlutabréfamarkað