Kynningarfundur 2020

Árleg kynning á uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Reykjavík með áherslu á framkvæmdir sem eru í gangi og uppbyggingaráform var haldin föstudaginn 30. október 2020. Hér eru upptökur frá beinni útsendingu ásamt kynningarglærum sem fyrirlesarar notuðu. 

Í ár var sérstök áhersla á Græna planið sem lýsir hvernig borgin mun sækja fram með kraftmikilli fjárfestingu með umhverfislega, fjárhagslega og félagslega sjálfbærni að leiðarljósi. 

Einnig var gefið út veglegt rit sem dreift var í hús á höfuðborgarsvæðinu og er það neðar á síðunni. 

Dagskrá

Græna planið og húsnæðisuppbyggingin

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri 

Spurningar um Græna planið

Björg Magnúsdóttir fundarstjóri spyr Dag B. Eggertsson borgarstjóra um Græna planið.

Staða og horfur á fasteignamarkaði í Reykjavík

Þröstur Sigurðsson frá Arcur  

Ártúnshöfði og Elliðaárvogur: Nýr og grænn borgarhluti í mótun

Þráinn Hauksson, landslagsarkitekt hjá Landslagi

Meiri borg, kröftugur og sjálfbær vöxtur til langrar framtíðar

Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs og Haraldur Sigurðsson, deildarstjóri aðalskipulags