Framkvæmdir í Hagaskóla
Skýringarmyndir
Hvað verður gert?
Aðalbygging skólans er í endurbyggingu. Eftir ítarlega greiningarvinnu hefur verið ákveðið að stórt og nútímalegt hús verði reist á skólalóðinni til að mæta fjölgun barna í hverfinu og umfangsmeiri starfsemi skólans. Tveggja til þriggja hæða nýbygging er í forhönnun. Um töluverða stækkun er að ræða en áætluð stærð nýrrar byggingar er um 3.100 m2.
Hvað mun þetta kosta?
Kostnaður er áætlaður 4.600 milljónir króna en þar af er kostnaður við endurgerð aðalbyggingar 1.200 milljónir króna- við það hefur bæst kostnaður vegna mikilla lóðaframkvæmda, ákveðið var að endurgera þurfti stærri hluta af aðalbyggingu og miklar hækkanir á byggingarvístitölu hafa orðið síðan frumkostnaðaráætlun var gerð.
Hvar er kennt á meðan?
Á meðan framkvæmdum á vor-og haustönn 2022 og vorönn 2023 var kennt í bráðabirgðahúsnæði við Ármúla, í Korpuskóla og Dunhaga álmu.
Öll skólastarfsemi Hagaskóla var komin á lóð Hagaskóla haustið 2023.
Hvernig gengur?
Mars 2024
Unnið er að fullnaðarfrágangi skólastofa, frágangi lóðar og klæðningar að utan.
Stefnt er að því að öllum frágangi ljúki sumarið 2024
Haustið 2023
Allt skólastarf er komið á lóð Hagaskóla í vesturbæ Reykjavíkur. Skólabyrjun frestaðist um nokkra daga til að hægt væri að klára framkvæmdir við C-álmu færanlegra kennslustofa og standsetja efri tvær hæðir í aðalbyggingu. Einnig er kennt í Dunhaga álmu og íþróttahúsinu.
Í annarri viku október er vonast til að hægt verði að taka í notkun stofur í kjallara aðalbyggingar sem ætlaðar eru fyrir verk- og listgreinar. Einnig má búast við að lengri verið komist í endanlegum frágangi á efri hæðunum tveimur.
Einnig er unnið að því að ljúka framkvæmdum í áföngum í A og B álmum færanlegra kennslueininga og að þær verði teknar í notkun um leið og hægt er. Um er að ræða hágæða einingar sem standast ströngustu öryggiskröfur, aðgengiskröfur og koma til móts við þarfir nútímaskólastarfs. Búist er við að öllum helstu framkvæmdum og frágangi við aðalbyggingu og annað húsnæði á lóðinni verði lokið um áramótin 2023-2024.
Haustið 2023
Allt skólastarf er komið á lóð Hagaskóla í vesturbæ Reykjavíkur. Skólabyrjun frestaðist um nokkra daga til að hægt væri að klára framkvæmdir við C-álmu færanlegra kennslustofa og standsetja efri tvær hæðir í aðalbyggingu. Einnig er kennt í Dunhaga álmu og íþróttahúsinu.
Í annarri viku október er vonast til að hægt verði að taka í notkun stofur í kjallara aðalbyggingar sem ætlaðar eru fyrir verk- og listgreinar. Einnig má búast við að lengri verið komist í endanlegum frágangi á efri hæðunum tveimur.
Einnig er unnið að því að ljúka framkvæmdum í áföngum í A og B álmum færanlegra kennslueininga og að þær verði teknar í notkun um leið og hægt er. Um er að ræða hágæða einingar sem standast ströngustu öryggiskröfur, aðgengiskröfur og koma til móts við þarfir nútímaskólastarfs. Búist er við að öllum helstu framkvæmdum og frágangi við aðalbyggingu og annað húsnæði á lóðinni verði lokið um áramótin 2023-2024.
Apríl 2023
Færanlegar kennslustofur
Fyrsti hluti færanlegra stofa er komin til landsins og er í undirbúningi til uppsetningar hjá söluaðila. Verið er að setja upp undirstöður á lóð skólans. Ljóst er að verkáætlun sem gefin var út fyrr í vetur mun því miður ekki standast vegna tafa sem orðið hafa á nokkrum stöðum í ferlinu.
Aðalbygging
Framkvæmdir eru á áætlun.
Febrúar 2023
Færanlegar kennslustofur
Jarðvinna mun hefjast í lok febrúar eða byrjun mars eftir því sem veður leyfir. Búist er við að fyrstu stofunum verði komið fyrir á lóðinni í lok mars eða byrjun apríl. Unnið verður að uppsetningu í þremur áföngum, hverjum á eftir öðrum.
Aðalbygging
Framkvæmdir eru á áætlun. Von er á að nýir gluggar berist til landsins í næsta mánuði og vel hefur einnig gengið með önnur aðföng.
Janúar 2023
Aðalbygging
Hafin er vinna við lagningu nýrra raflagna, pípulagna og loftræsikerfis innanhúss. Útboð á innréttingum er í auglýsingu og opna tilboð 24. janúar 2023. Utanhúss er reiknað með vinna vegna nýrra drenlagna, nýs þaks og utanhússklæðningar verði komin í gang innan nokkurra vikna. Pöntun á nýjum gluggum og hurðum er frágengin, og sem fyrr eru engar fyrirséðar hindranir að A-álma Hagaskóla verði komin í fulla notkun haustið 2023.
Nóvember 2022
Færanlegar kennslustofur
Tilboð verða opnuð 21. nóvember. Þegar hefur farið fram grunnhönnun að stofunum og uppsetningu sem verður aðlöguð eftir að samningar nást og hægt verður að fara að vinna eftir nákvæmum mælingum. Þá er í undirbúningi grundun fyrir húsin sem verða staðsett á austurhluta lóðar Hagaskóla. Sem fyrr er stefnt að því að taka færanlegar kennslustofur í gagnið á lóð Hagaskóla fljótlega á nýju ári.
Aðalbygging
Búið er að bjóða út að nýju þá hluta framkvæmda við aðalbyggingu sem voru í höndum verktaka sem Reykjavíkurborg rifti nýlega samningum við. Hafist var handa við uppsetningu á nýju loftskiptakerfi í byrjun mánaðar og þá er einnig verið að mála húsið að innan. Vegna þess hversu vel gengur með aðra hluta framkvæmdanna standa vonir til að hægt verði að standa við fyrri áætlanir og taka húsið í notkun í upphafi hausts 2023.
Október 2022
Færanlegar kennslustofur
Örútboð um fleiri færanlegar kennslustofur á lóð Hagaskóla verður auglýst á næstu dögum. Útboðið sem byggir á rammasamningi verður opið í tvær vikur. Undirbúningur fyrir uppsetningu er þegar hafinn og stefnt er að því að vinna við uppsetningu geti hafist mjög fljótlega eftir að samningar hefur verið undirritaðir. Eins og áður hefur komið fram er vonast til að hægt verði að hefja skólastarf í færanlegum stofum við Hagaskóla fljótlega á nýju ári en tímalína munu skýrast betur þegar niðurstöður útboðs liggja fyrir.
Eldvarnir
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins ítrekaði beiðni um að fá upplýsingar um bættar brunavarnir í Korpuskóla. Ábendingar um úrbætur komu fram eftir hefðbundið eftirlit sem gert er í öllu skólahúsnæði. Brugðist hefur verið við öllum ábendingum nema einni. Það var krafa um eldvarnargardínu í eldhúsi sem ekki hefur fengist afgreidd frá söluaðila fyrr en nú og unnið er að uppsetningu hennar og verður verkinu lokið í þessari viku.
September 2022
Framkvæmdir eru vel á veg komnar við aðalbyggingu skólans. Verið er að vinna í utanhússklæðningu og að endurnýja glugga og þak. Búið er að setja upp eina færanlega kennslustofu.
Framundan er uppsetning á fleiri færanlegum kennslueiningum á lóð Hagaskóla og hefur grenndarkynning þegar verið samþykkt. Vonast er til að hægt verði að flytja starfsemi skólans aftur í Vesturbæinn á nýju ári 2023. Frekari upplýsingar varðandi tímalínu og framgang uppsetningar er að vænta í lok október og verður þá boðað til fundar með foreldrum.
30. september: Öryggis- og lokaúttekt byggingarfulltrúa og slökkviliðs vegna færanlegrar kennslustofu 10. bekkjar Hagaskóla er lokið. Þetta þýðir að skólinn er kominn með formlegt leyfi til að hefja kennslu í byggingunni.
Forsaga
Hagaskóli var reistur á árunum 1957-62 og er þörf er á viðhaldi og endurbótum á húsnæði skólans. Mygla greindist í skólanum og var í kjölfarið farið í greiningarvinnu á endurbótum og uppbyggingu. Gerðar voru þrjár tillögur um framtíðarskipulag skólans og greint á milli þeirra út frá kostnaði, gæðum og menntastefnu Reykjavíkurborgar.
Vantar þig meiri upplýsingar?
Áhersla er lögð á góða upplýsingamiðlun á framkvæmdatímanum.
- Umhverfis- og skipulagssvið Borgartúni 12-14 105 Reykjavík s. 411 1111
- Skóla- og frístundasvið Borgartúni 12-14 105 Reykjavík s. 411 1111
Hægt er að hafa samband í tölvupósti á netföngin usk@reykjavik.is og sfs@reykjavik.is ef einhverjar spurningar vakna.