Hugmyndasöfnun

Hugmyndasöfnun fyrir Hverfið mitt 2022-2023 fór fram frá 22. september til 27. október. Kosningar fara svo fram haustið 2023. Hér finnur þú allar upplýsingar um það hvernig þú getur sent inn hugmynd í Hverfið mitt. 

Hvað er Hverfið mitt?

Hverfið mitt er lýðræðisverkefni sem fer fram á tveggja ára fresti. Þar gefst fólkinu í borginni kostur á að hafa áhrif á sitt nánasta umhverfi með því að koma með hugmyndir að nýjum verkefnum sem gera borgina okkar betri. Verkefnið hefst með hugmyndasöfnun og lýkur með rafrænni hverfakosningu.

Hvernig sendi ég inn hugmynd?

Þú sendir inn hugmynd á samráðsvef Reykjavíkurborgar.

 

Þegar hugmynd er sett inn á samráðsvefinn þarf að velja hverfi og passa að heiti hugmyndar, staðsetning og lýsing séu skýr.

 

Hægt er að setja inn hugmynd í hvaða hverfi borgarinnar sem er, óháð búsetu.

 

Á vefnum geta íbúar kynnt sér hugmyndir annarra, rökrætt þær og gefið þeim endurgjöf.

Hetjan úr hverfinu stillir sér upp fyrir framan Hallgrímskirkju.

Hvaða skilyrði þarf hugmyndin að uppfylla?

  • Vera nýframkvæmd – viðhalds- og öryggisverkefnum er vísað annað
  • Kosta ekki meira fjármagn en hverfinu er úthlutað
  • Krefjast ekki verulegs rekstrarkostnaðar á borð við kostnað vegna starfsmannahalds eða vöktunar með öryggismyndavélum
  • Vera framkvæmanlegar innan tímaramma verkefnisins - þ.e. fyrir árslok 2024
  • Falla að skipulagi og yfirlýstri stefnumótun Reykjavíkurborgar
  • Vera á verksviði borgarinnar 
  • Vera á opnu svæði í borgarlandinu
  • Vera í samræmi við lög og reglur

Hvað verður um hugmyndina mína?

Þegar hugmyndasöfnun lýkur er komið að yfirferð hugmynda. Þar er farið yfir allar innsendar hugmyndir og metið hvort þær falli að skilyrðum verkefnisins og séu framkvæmanlegar.  

Eftir yfirferðina fer fram uppstilling kjörseðla þar sem 25 hugmyndir eru valdar til að fara áfram í kosningu í hverfum Reykjavíkurborgar. Að lokum fer fram rafræn kosning. Sigurhugmyndirnar eru svo hannaðar áfram, boðnar út og framkvæmdar. 

Hugmyndirnar geta til dæmis snúist um

Umhverfi, útivist og bætta lýðheilsu 

  • Dæmi: Minigolfvelli, útiæfingatæki, litla almenningsgarða og áningarsvæði, sjósundsaðstöður. 

List í almannarými 

  • Dæmi: Vegglistaverk og útilistaverk.

Afþreyingu 

  • Dæmi: Niðurgrafin trampólín og ærslabelgi, ný leiktæki á opin leiksvæði, klifurstein og hringekja með hjólastólaaðgengi. 

Snjallar útfærslur á öllu mögulegu 

  • Dæmi: Smábókasafn, rathlaupabraut og örugg og aðgangsstýrð hjólastæði. 

Annað sem er gott að hafa í huga

Er hugmyndin á opnu svæði í borgarlandinu?  

Til að athuga hvort staðsetning hugmyndar sé í borgarlandi er hægt að opna Borgarvefsjá, fara í valmynd uppi í vinstra horni, velja þar "Hús og lóðir" og haka við "Lóðamörk''. 

Er hugmyndin mín nokkuð of dýr?

Framkvæmdin má ekki kosta meira en það sem nemur fjárhæð þíns hverfis. Við vitum að það getur verið erfitt að átta sig á heildarkostnaði hugmyndarinnar en það er samt gott að hafa þessa spurningu á bak við eyrað. Upplýsingar um hvað eldri verkefni kostuðu má finna í skýrslu um Hverfið mitt 2020-2021. 

Hvernig er fjármagni skipt á milli hverfa? 

Til að tryggja minnstu hverfunum lágmarksfjárhæð er fjórðungi fjármagnsins skipt jafnt milli hverfa. Restinni af upphæðinni er svo skipt á milli hverfanna í hlutfalli við íbúafjölda.

Hvað ef ég get ekki notað samráðsvefinn?

Þau sem ekki geta sett fram hugmyndir á samráðsvef, svo sem vegna fötlunar, býðst á meðan á hugmyndasöfnun stendur að senda hugmyndir sínar með tölvupósti á hverfidmitt@reykjavik.is eða með pósti stíluðum á Hverfið mitt, mannréttinda- og lýðræðisskrifstofa Reykjavíkurborgar, Ráðhúsi Reykjavíkur, Tjarnargötu 11, 101 Reykjavík.

 

Einnig er hægt að hafa samband við þjónustumiðstöðvar í hverfunum eða þjónustuver Reykjavíkurborgar í síma 411-1111 og óska eftir aðstoð.