Heilsa og líðan hinsegin fólks

Heilsa og líðan hinsegin fólks er rannsóknarverkefni sem miðaði að því að kanna lykilþætti í heilsu og líðan hinsegin einstaklinga á Íslandi, í því augnamiði að varpa ljósi á heilsutengdar áskoranir hinsegin samfélagsins.
Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýna að hinsegin fólk býr almennt við verri heilsu og líðan en þau sem eru ekki hinsegin. Ljóst er að ráðast þarf í aðgerðir til að bæta þar úr.
Um rannsóknina
Sumarið 2024 fékk rannsóknarverkefnið Heilsa og líðan hinsegin fólks styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna. Verkefnið var samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Samtakanna ´78 - Félags hinsegin fólks á Íslandi.
Aðaláhersla verkefnisins var að kanna heilsu og líðan hinsegin fólks á Íslandi, efni sem hefur verið lítið rannsakað hingað til. Rannsóknin byggði á gögnum úr Heilsu og líðan könnuninni sem Embætti landlæknis framkvæmir á fimm ára fresti. Sérstaklega voru skoðaðir lykilþættir á borð við reynslu af ofbeldi, áfengis- og vímuefnaneyslu, og geðheilsu og varpaði rannsóknin ljósi á einstakar áskoranir hinsegin samfélagsins á þeim sviðum.
Hinsegin fólk kom verr út úr nánast öllum lykilþáttum heilsu og líðan sem kannaðir voru í rannsókninni. Þau upplifðu líkamlega og andlega heilsu sína verri en þau sem ekki eru hinsegin gerðu og voru líklegri til að hafa upplifað eða verið með síþreytu, kvíða, streitu, áfallastreituröskun og/eða þunglyndi. Þá voru hinsegin einstaklingar líklegri til að hafa orðið fyrir ofbeldi, hvort sem það var andlegt, líkamlegt eða kynferðislegt.
Niðurstöðurnar verða nýttar í að móta markvissari aðgerðir og stefnur til að styðja við lýðheilsu hinsegin samfélagsins. Þar eru forvarnir lykilþáttur en einnig fræðsla um hinsegin málefni innan heilbrigðiskerfisins og aukinn stuðningur við hinsegin samfélagið. Meira má lesa um niðurstöðurnar og tillögur að aðgerðum í skýrslu rannsóknarinnar hér að neðan.
Helstu niðurstöður
Glærur á PDF formi með helstu niðurstöðum rannsóknar. Einnig er hægt að fletta í gegnum glærurnar í glugganum hér fyrir neðan.
Helstu niðurstöður á ensku
Glærur á PDF formi með helstu niðurstöðum rannsóknar á ensku.