No translated content text
Færanleg matvælastarfsemi
Undir færanlega matvælastarfsemi falla eiginlegir matsöluvagnar, önnur sölustarfsemi með matvæli á hjólum, sölubásar með matvæli og matvælamarkaðir.
Almenn skilyrði
Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur hefur samþykkt almenn skilyrði fyrir færanlega matvælastarfsemi:
- Almenn skilyrði fyrir rekstri matsöluvagna í Reykjavík
- Almenn skilyrði fyrir færanlega matvælastarfsemi aðra en matsöluvagna í Reykjavík
- Almenn skilyrði fyrir rekstri sölubása með matvæli í Reykjavík
Starfsleyfi
Færanleg matvælastarfsemi er starfsleyfisskyld hjá Heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga.
Ef rekstraraðili hefur lögheimili í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur þarf hann að sækja um starfsleyfi til Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur.
Í umsókn um starfsleyfi þarf að gera ítarlega grein fyrir starfseminni, m.a. hvaða matvæli á að bjóða upp á, lagerhúsnæði, matvælaöryggiskerfi og fleira. Sjá nánar í almennum skilyrðum fyrir viðkomandi starfsemi.
Leyfi til götu- og torgsölu á borgarlandi
Ef ætlunin er að reka færanlega matvælastarfsemi á borgarlandi verður að liggja fyrir leyfi til götu- og torgsölu frá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Ef rekstraraðilinn er með lögheimili í Reykjavík verður vilyrði um götu- og torgsöluleyfi að liggja fyrir áður en sótt er um starfsleyfi til Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur.
Ef rekstraraðili er með lögheimili í öðru sveitarfélagi þarf hann samt sem áður að sækja um götu- og torgsöluleyfi en honum nægir að tilkynna Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur um starfsemina og samhliða afhenda afrit af gildu starfsleyfi frá viðkomandi heilbrigðiseftirliti. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur metur hvort gildandi starfsleyfi sé í samræmi við starfsemina sem tilgreind er í umsókn um leyfi til götu- og torgsölu.
Ef nauðsyn krefur fer Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fram á að rekstraraðili sæki um tímabundið starfsleyfi hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur eða gefur neikvæða umsögn um götu- og torgsöluleyfi.