Spurt og svarað um grunnskóla

Hér finnur þú algengar spurningar og svör um grunnskóla.

Skráning í grunnskóla

Hvernig sæki ég um í grunnskóla fyrir barnið mitt?

Innritun í grunnskóla fer fram í gegnum Mínar síður. Þaðan fer umsóknin rafrænt til viðkomandi skóla og foreldrar/forsjáraðilar fá staðfestingu um móttöku umsóknar í "síðan mín". Þegar skóli hefur samþykkt skólavist berst tölvupóstur því til staðfestingar.

Hvar sæki ég um í sjálfstætt starfandi grunnskóla fyrir barnið mitt?

Innritun í sjálfstætt starfandi grunnskóla fer fram hjá hverjum skóla fyrir sig. Fari barn ekki í hverfisskóla heldur í sjálfstætt starfandi skóla, sérskóla eða flytjist burt, þarf að láta skólayfirvöld vita um þá tilhögun.

Hvar geta foreldrar verðandi 1. bekkinga aflað sér upplýsinga um skólabyrjun?

Verðandi 1. bekkingar fá sent bréf vorið sem þau eiga að byrja í skóla. Þar eru allar helstu upplýsingar um skráningu. Nánari upplýsingar um skólabyrjun eru á heimasíðum hvers skóla fyrir sig. Skráning nemenda í 1. bekk fer fram í kringum mánaðamótin febrúar/mars. Ekki er hægt að sækja um fyrir þann tíma.

Hvernig sé ég í hvaða skólahverfi ég bý?

Farið er inn á https://borgarvefsja.reykjavik.is/borgarvefsja/ og smellt á "Opna valglugga" og þar er valið "Borgarskipting" og "Grunnskólahverfi". Þá birtist götukort af Reykjavík með skilgreindum skólahverfum.

Hvar sæki ég um skólamat fyrir barnið mitt?

Skráning í mötuneyti fer fram rafrænt. Verðið er það sama í öllum skólum borgarinnar en ekki þarf að greiða fyrir fleiri en tvö börn frá hverju heimili óháð skólastigi. Upplýsingar um matseðla má nálgast á heimasíðu hvers skóla fyrir sig. Mataráskrift heldur áfram næsta skólaár nema henni sé sagt upp.

Hvar sæki ég um skólamat fyrir barnið mitt?

Skráning í mötuneyti fer fram rafrænt. Verðið er það sama í öllum skólum borgarinnar en ekki þarf að greiða fyrir fleiri en tvö börn frá hverju heimili óháð skólastigi. Upplýsingar um matseðla má nálgast á heimasíðu hvers skóla fyrir sig. Mataráskrift heldur áfram næsta skólaár nema henni sé sagt upp.

Stendur börnum í grunnskólum Reykjavíkur til boða aðstoð vegna námsörðugleika eða ef þeim líður illa tilfinningalega eða félagslega?

Já. Grunnskólar Reykjavíkur fá sérstaka fjárhlutun vegna barna með fatlanir og miklar sérþarfir í námi, meðal annars vegna geðraskana og annarra alvarlegra hegðunarvandamála. Skólastjóri sér um að fylla út umsókn um fjárúthlutun ásamt greiningargögnum og senda til skóla- og frístundasviðs. 

Úthlutað er í júní og endurskoðun úthlutunar fer fram í október.

Sérdeildir

Eru einhverjar sérdeildir í grunnskólum Reykjavíkur?

Já nokkrar sérdeildir með sérhæft hlutverk eru í grunnskólum Reykjavíkur. Þær þjóna börnum úr öllum hverfum borgarinnar. Sex sérdeildir eru fyrir nemendur með einhverfu. Í Hlíðaskóla er starfrækt táknmálssvið fyrir heyrnarlausa og heyrnarskerta nemendur.

Hvernig sæki ég um skólavist fyrir barnið mitt í sérdeild?

Foreldrar sækja um skólavist í deildunum á sérstöku eyðublaði. Með umsókn þurfa að fylgja greiningargögn og skýrslur leik- eða grunnskóla vegna nemandans eftir því sem við á. Umsóknum skal skilað til skóla- og frístundasviðs eða til skólanna fyrir 1. mars ár hvert. Inntökuteymi, sem í sitja skólastjórar og deildarstjórar deildanna ásamt fulltrúa skóla- og frístundasviðs, fjallar um umsóknir um skólavist. Ákvörðun um inntöku skal svara skriflega fyrir 15. apríl.

Sérskólar

Eru einhverjir sérskólar í Reykjavík?

Já skólarnir Klettaskóli og Brúarskóli eru sérskólar á vegum Reykjavíkurborgar. Skólarnir eru fyrir börn sem eru á grunnskólaaldri og með greiningu frá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, barna- og unglingageðdeild Landspítala, Heyrnar- og talmeinastöð eða Sjónstöð Íslands.

Hvernig er sótt um sérskóla?

Hægt er að sækja um skólavist í Klettaskóla rafrænt á heimasíðu skólans.

Með umsókn fylgi greiningargögn og skýrslur leik- eða grunnskóla vegna nemandans eftir því sem við á. Fagráð um innritun er við skólann sem fjallar um og gerir tillögur um afgreiðslu umsókna.

Skólavist í Brúarskóla er tímabundið úrræði í 1 eða 2 annir, með það að markmiði að gera nemendur hæfari til að stunda nám í almennum grunnskóla.

Til þess að sækja um skólavist í Brúarskóla þarf að skila inn umsókn til skólans á þar til gerðum eyðublöðum sem finna má á heimasíðu skólans. Umsókn um skólavist í Brúarskóla.

Foreldrar skila umsókn til skólanna fyrir 1. mars ár hvert.

Að skipta um skóla

Get ég sótt um grunnskóla fyrir barnið mitt sem er ekki hverfisskólinn?

Já, nemendur með lögheimili í tilteknu skólahverfi eiga rétt á skólavist í hverfisskóla og hafa því forgang. Skóli tekur inn nemendur utan skólahverfis nema húsnæði hamli eða aðrar lögmætar ástæður.

Hvernig sæki ég um skólaskipti fyrir barnið mitt?

Ef eldri nemendur í hverfisskólum skipta um skóla þarf að tilkynna það til þess skóla sem nemandinn er að hætta í sem síðan lætur skólayfirvöld vita. Sótt er um skólaskipti á Mínum síðum. Þetta á ekki við um einkaskóla og sérskóla.

Get ég sótt um skólavist fyrir barnið mitt í öðru sveitarfélagi en lögheimili þess segir til um?

Já, umsóknir um slíkt verða að hafa borist ár hvert fyrir 1. apríl. Þú þarft að skila umsóknareyðublaði. Sé umsóknin samþykkt sér Reykjavíkurborg um að greiða því sveitarfélagi sem nemandi stundar nám í.