Hverfisskipulag fyrir Kjalarnes

Rammaskipulag fyrir Grundarhverfi og nágrenni

Unnið er að rammaskipulagi fyrir Grundarhverfi og nágrenni. Rammaskipulagið mun liggja til grundvallar áframhaldandi skipulagsvinnu á svæðinu. 

Markmið rammaskipulagsins er að móta heildarsýn á hvernig byggðarkjarninn í Grundarhverfi getur þróast með uppbyggingu og aukna sjálfbærni í huga um leið og staðinn er vörður um sérstöðu og staðaranda á svæðinu.

  • Opið hús verður haldið í Klébergsskóla miðvikudaginn 2. desember 2026 kl. 16:30-18:30 til að kynna frumdrög á skipulagstillögum. Nánar má lesa um skipulagsferlið neðar á síðunni.

Hugmyndaleit rammaskipulags

Reykjavíkurborg efndi í nóvember 2025 til hugmyndaleitar vegna rammaskipulagsgerðar fyrir Grundarhverfi og nágrenni. Markmið hugmyndaleitarinnar var að fá fram bestu mögulegu lausnir að uppbyggingu og útfærslu byggðar á svæðinu. Óskað var eftir tillögum um þróun og uppbyggingu íbúðabyggðar sem tæki mið af yfirbragði og samfélagsgerð núverandi þéttbýliskjarna og sérstöðu svæðisins með tilliti til tengsla við umhverfi og náttúru. 

Þremur arkitektastofum var boðin þátttaka í hugmyndaleitinni og sérstök valnefnd valdi eina tillögu til áframhaldandi vinnslu. Var það tillaga arkitektastofunnar Studio Bua - Grundarhverfi „frá grunni upp“

Uppbygging - Kjalarnes

Grundarhverfi „frá grunni upp“

Tillaga Studio Bua byggir á ítarlegri könnun á sögu svæðisins, þörfum íbúa, staðbundnum athugunum og framtíðarsýn um sjálfbæran vöxt. 

Meginmarkmiðið er að auka íbúðabyggð, samhliða því að efla sérstöðu svæðisins og tryggja að nýbyggingar yfirskyggi ekki núverandi byggð. Staðsetning Grundarhverfis er einstök innan borgarinnar. Með aukinni þjónustu og bættum innviðum getur það orðið bæði eftirsóttur og sérstakur staður á höfuðborgarsvæðinu, „þorp í borginni“ sem býður upp á það besta úr báðum heimum: nálægð við borgina og útsýni yfir hana en jafnframt friðsæld sveitarinnar.

Hægt er að kynna sér vinningstillöguna hér að neðan.

Áframhaldandi þróun tillögunnar

Vinna við rammahluta er enn á fyrstu stigum, þar sem verið er að móta frumhugmyndir að framtíðarsýn og uppbyggingu hverfisins. Unnið er að áframhaldandi þróun tillögunnar og áfangaskiptingu uppbyggingar í samræmi við umsögn valnefndar. Lögð verður áhersla á samráð við íbúa og hagsmunaaðila við áframhaldandi vinnu tillögunnar. 

Samhliða vinnu við rammahlutann er unnið að endurskoðun á deiliskipulagi við Jörfa og Norðurgrund með það að markmiði að uppbygging í jaðri núverandi hverfis geti hafist sem fyrst.

  • Frumdrög rammaskipulags og vinnutillögur að endurskoðun á núverandi deiliskipulagi Jörfa/Norðurgrundar verða til kynningar á opnu húsi í Klébergsskóla 2. desember 2026 kl. 16:30-18:30.