Þrjátíu og sex tillögur bárust um þróun Keldnalands

Umhverfi

Dómnefnd metur nú tillögurnar og velur allt að fimm sem verða þróaðar áfram á öðru þrepi.
göngustígur og gróður

Alls bárust 36 tillögur um nýtt sjálfbært borgarhverfi að Keldum en fyrra þrepi alþjóðlegrar samkeppni um þróun Keldnalands lauk 19. apríl.  Dómnefnd metur nú tillögurnar og velur allt að fimm sem verða þróaðar áfram á öðru þrepi.  Reykjavíkurborg og Betri samgöngur ohf. standa saman að samkeppninni.

Næstu skref

Niðurstöður dómnefndarinnar um þær tillögur, sem keppa á öðru þrepi liggja fyrir 11. maí.  Öðru þrepi lýkur svo með skilum tillagna þann 18. ágúst og má gera ráð fyrir að endanleg niðurstaða um hlutskarpasta teymið liggi fyrir í september.

Skipulagsvinna á grunni áhugaverðustu hugmyndarinnar

Með samkeppninni er verið að leita eftir teymi með áhugaverða og raunsæja hugmynd að nýju þéttbyggðu, fjölbreyttu og kolefnishlutlausu hverfi, sem verður vel tengt innan borgarinnar og á höfuðborgarsvæðinu öllu.  Á grunni áhugaverðustu hugmyndarinnar verður farið í frekari skipulagsvinnu að samkeppninni lokinni.

Nafnleynd hvílir yfir samkeppninni og það mun ekki liggja fyrir hver eru að baki tillögunum 36 fyrr en endanlegar niðurstöður liggja fyrir í september.