Hugum að tunnunum í vetur

Sorphirða

Það léttir starfsfólki sporin ef greiður aðgangur er að sorptunnum. Hálka og snjór getur komið í veg fyrir tæmingu. Mynd/Róbert Reynisson
Starfsfólk sorphirðu að störfum um vetur

Nú þegar vetur er skollinn á er mikilvægt að ganga frá sorptunnum, geymslum og tunnugerðum þannig að sorphirðan gangi vel. Hafið í huga að starfsfólk sorphirðunnar neyðist til þess að skilja tunnurnar eftir ef það kemst ekki að þeim til að losa. Hér koma nokkur góð ráð til að tryggja að allt gangi vel fyrir sig:

  • Mokum, söltum, söndum -  Það léttir starfsfólki sporin ef greiður aðgangur er að sorptunnum. Hálka og snjór geturkomið í veg fyrir tæmingu. 
  • Lýsum upp skammdegið - Sjáum til þess að lýsing sé góð í skammdeginu og munum eftir að skipta um sprungnar perur. 
  • Hugsum út í hindranir - Ef bílum er illa lagt eða framkvæmdir loka tunnur inni getur það komið í veg fyrir tæmingu.  
  • Eru tunnurnar á góðu stað? - Veljum staðsetningu sorptunna með tilliti til veðurs og vinda til að forðast að þær fjúki og valdi tjóni. 
  • Eru hjarirnar í lagi? - Pössum að hurðir á sorpgeymslum séu í lagi. Smyrjum lása og lamir. 

Einnig er vakin athygli á því að hægt er að lækka sorphirðugjöldin með því að flytja tunnur nær lóðamörkum og slá tvær flugur í einu höggi því leiðin sem þarf að moka og halda greiðri styttist í leiðinni. Tunnur í meira en 15 metra fjarlægð frá lóðamörkum bera hærri sorphirðugjöld.

Takk fyrir lesturinn með fyrirfram þökkum fyrir að hjálpa til við að sorphirðan gangi sem best fyrir sig í vetur og að hjálpa til við að tryggja öryggi starfsfólks.