Fimm tillögur áfram í samkeppni um Keldnaland

Keldur eru fallegt og grænt svæði og verður lögð áhersla á að nýta og taka mið af náttúrugæðum svæðisins.
Hús, graslendi og tré.

Fimm tillögur voru valdar áfram í alþjóðlegri samkeppni um þróun Keldnalands. Dómnefnd samkeppninnar hittist í Reykjavík dagana 8. – 10. maí og fór yfir þær 36 tillögur, sem bárust í fyrra þrep keppninnar. Það eru Reykjavíkurborg og Betri samgöngur ohf. sem standa fyrir samkeppninni.

Að mati loknu ákvað dómnefnd að bjóða fimm efstu teymunum að móta tillögur sínar um þróun Keldnalands frekar. Þau teymi fá greiddar 50.000 evrur til að setja fram áhugaverða og raunsæja hugmynd að nýju þéttbyggðu, fjölbreyttu og kolefnishlutlausu hverfi, sem verður vel tengt innan borgarinnar og á höfuðborgarsvæðinu öllu. Vinnu á öðru þrepi lýkur 18. ágúst 2023.

Niðurstaða í september

Nafnleynd hvílir yfir samkeppninni og ekki verður ljóst hver eru að baki tillögunum fyrr en endanlegar niðurstöður liggja fyrir í september. Farið verður í frekari skipulagsvinnu á grunni áhugaverðustu hugmyndarinnar að samkeppninni lokinni.