Loftslagssamtal með nýsköpunarsamfélaginu
Reykjavíkurborg bauð leiðandi aðilum í nýsköpun til samtals í Grósku fimmtudaginn 5. mars. Loftslagsborgarsamningurinn var kynntur og dregin voru fram lykiltækifæri og áskoranir sem kalla á skapandi hugarflug og framsækna tækni.
Til að ná markmiðum borgarinnar um kolefnishlutleysi fyrir árið 2030 þarf ekki bara metnað heldur öfluga samstarfsaðila með hugrekki til að skapa nýjar lausnir sem hafa raunveruleg áhrif. Borgin og nýsköpunarsamfélagið fengu tækifæri á fundinum til að skiptast á hugmyndum og skoða tækifæri til frekara samstarfs með það leiðarljósi að leggja grunn að samstarfi sem byggir á raunverulegum markmiðum, mælanlegum áhrifum og sameiginlegri framtíðarsýn.
Borgarstjóri opnaði fundinn
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri opnaði fundinn. Hún ræddi um að nýsköpun þrífist vel í Reykjavík og hér hafi margar nýjar hugmyndir orðið að veruleika og hvernig nýsköpunarsamfélagið og borgin gætu náð markmiðinu um kolefnishlutleysi saman.
Kamma Thordarson frá Reykjavíkurborg kynnti Loftslagsborgarsamninginn og hvernig nýsköpunarsamfélagið grípi hugmyndir og skapi samfélag og hvernig við getum saman skapað jarðveg þar sem hugmyndir geti vaxið.
Eftir það tóku við örerindi frá nýsköpunarsamfélaginu, nánar tiltekið frá Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins (Inga Hlín Pálsdóttir), Vísinda- og nýsköpunarsviði HÍ (Ásta Olga Magnúsdóttir), Hringiðu (Haraldur Bergvinsson), Fab Lab (Þóra Óskarsdóttir) og Innovation Week (Melkorka Sigríður Magnúsdóttir).
Framkvæmdastjóri Orkuklasa, Rósbjörg Jónsdóttir tók síðan þátt í sófaspjalli með Oddi Ísari Þórssyni verkefnastjóra í Sjávarklasanum sem fundarstjórinn Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Hí, stjórnaði. Dagskránni lauk síðan á því að þáttakendur tóku þátt í vinnustofu og ræddu ýmsar brýnar spurningar tengdar markmiði um kolefnishlutleysi 2030 þar sem margar góðar hugmyndir komu fram og voru ýmis tækifæri til samstarfs rædd. Það er til mikils að vinna að þróa lausnir sem hraða kolefnishlutlausri framtíð.