Umsókn um göngugötukort á Mínum síðum
Ef þú býrð eða starfar í húsnæði þar sem bílastæði er á baklóð og eina leiðin að því er um göngugötu, getur þú sótt um göngugötukort. Bílastæðið þarf að vera samkvæmt samþykktu skipulagi.
Eitt göngugötukort er gefið út fyrir hvert bílastæði. Kortið þarf að vera sýnilegt í bílnum áður en ekið er um göngugötu. Hægt er að sækja um göngugötukort á Mínum síðum Reykjavíkurborgar.