Skráning í Vinnuskóla Reykjavíkur hafin

Meginhlutverk Vinnuskólans er að veita nemendum úr efstu bekkjum grunnskóla Reykjavíkur uppbyggileg sumarstörf og fræðslu í öruggu starfsumhverfi. Mynd/Róbert Reynisson
Krakkar að raka og vinna við hreinsun.

Skráning í Vinnuskóla Reykjavíkur fyrir sumarið 2026 hófst í dag. Meginhlutverk Vinnuskólans er að veita nemendum úr efstu bekkjum grunnskóla Reykjavíkur uppbyggileg sumarstörf og fræðslu í öruggu starfsumhverfi. Öllum nemendum 8., 9. og 10. bekkja býðst að koma til starfa við fjölbreytt verkefni sem flest snúa að garðyrkju og umhirðu í borginni.

Þrjú starfstímabil

Hver nemandi fær úthlutað vinnu á einu starfstímabili sumarið 2026. 

  • 11. júní - 2. júlí
  • 3. júlí - 23. júlí
  • 24. júlí - 14. ágúst

Vinnudagar á hverju tímabili eru fimmtán. Unnið er alla virka daga hverrar viku. Ekki er unnið á lögbundnum frídögum. Nemendur í 8. bekk vinna í 3,25 klst. dag en nemendur í 9. og 10. bekk í 6,5 klst. á dag.

Vinnuskólinn er að stórum hluta til útiskóli og flest verkefni skólans snúast um umhirðu gróðurs og beða víðs vegar í borgarlandinu og á stofnanalóðum. Helstu verkfæri sem notuð eru í starfi eru ýmis smá handverkfæri til beðavinnu, skóflur, hrífur og hjólbörur.

Vinnuskólinn vekur athygli á því að áfram verður haldið með það verkefni að auka fjölbreytni starfa hjá nemendum úr 10. bekk. Hluta þeirra nemenda sem hafa áhuga á að starfa við annað en garðyrkju og umhirðu í hefðbundnu hópastarfi skólans mun bjóðast að starfa við meðal annars aðstoð á leikskólum, frístundaheimilum og á fleiri starfsstöðum borgarinnar. Tölur frá síðasta starfsári Vinnuskólans endurspegla þetta.

100 sumarstörf fyrir 17 ára ungmenni

Líkt og undanfarin ár hefur verið ákveðið að bjóða uppá 100 sumarstörf fyrir 17 ára ungmenni og sérstaklega verður horft til 17 ára ungmenna í viðkvæmri stöðu. Um er að ræða 100 fjölbreytt störf, m.a. með börnum, öldruðum og í umhirðu borgarlandsins. 

Þau 17 ára ungmenni sem hafa ekki enn sótt um sumarstarf en hafa áhuga á því, geta sótt um á biðlista vegna sumarstarfa en biðlistinn er opinn öllum einstaklingum sem eiga lögheimili í Reykjavík.

 Hér er hlekkur á biðlistann: Biðlisti vegna sumarstarfa | Reykjavik

Vinnuskólinn 2025 í tölum

  • Samtals 663 vinnuskólaliðar í störfum hjá leikskólum og frístundaheimilum.
  • Samtals 587 hjá íþrótta- og æskulýðsfélögum.
  • Samtals 1250 vinnuskólaliðar í slíkum störfum sumarið 2025.
  • Heildarfjöldi nemenda Vinnuskólans 2025 var 3486.
  • 35,9% nemenda vinnuskólans í störfum hjá leikskólum, frístund, íþrótta- og æskulýðsfélögum.

Allir nemendur sem skrá sig í Vinnuskólann fá starf en ef skráningar berast seint minnka líkur á því að hægt sé að koma til móts við óskir nemenda um starfsstaði, tímabil og/eða sérverkefni.