Góð aðsókn í Vinnuskólann fyrir sumarið

Vinnuskólinn

„Það gengur vel að undirbúa sumarið,“ segir Þorvaldur Guðjónsson skólastjóri Vinnuskóla Reykjavíkur. Meira en tvö þúsund börn hafa skráð sig í Vinnuskóla Reykjavíkur í sumar. 

Skráningar í Vinnuskóla Reykjavíkur fyrir sumarið 2025 hófust 10. apríl en meirihluti nemenda í 8., 9., og 10. bekk grunnskóla skrá sig í unglingavinnuna á sumrin.

„Í Vinnuskólanum læra krakkarnir ekki bara að vinna heldur læra þau einnig um réttindi og skyldur starfsfólks, að gera ferilskrá og undirbúa sig undir atvinnuviðtöl,“ segir Þorvaldur. „Í 8. bekk koma þau og læra hvernig á að lesa launaseðil, í 9. bekk eru þau að læra um réttindi og skyldur starfsfólks, og í 10. bekk þá er það að búa sig undir atvinnuviðtal og hvernig á að gera ferilskrá.“

Flest störfin snúa að garðyrkju og umhirðu. „Þúsundir krakka verða í útivinnu að snyrta beðin og gera borgina okkar fallegri á sumrin,“ segir Þorvaldur Guðjónsson og að þetta starf sé mikilvægt fyrir ásýnd borgarinnar. 

Tímakaupið fyrir unglingana er á bilinu 833 krónur í áttunda bekk til 1.388 krónur í tíunda bekk. Sú breyting hefur orðið að nú hafa unglingarnir aðgang að hreinlætisaðstöðu í grunnskólunum í hverfinu sínu en áður voru notaðir sérstakir skúrar. 

Foreldrar skrá sína unglinga í unglingavinnu Vinnuskólans í gegnum rafrænt skráningarform. Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki. Allir nemendur úr 8., 9. og 10. bekkjum sem skráðir eru fá vinnu.