No translated content text
Kvistaborg endurnýjun leikskólahúsnæðis
Myndir
Hvað verður gert?
Verkfræðistofan Efla mælir með að farið verði í gagngerar endurbætur á elsta hluta skólans sem byggður var 1972 og hentar illa starfi nútíma leikskóla.
Meðan framkvæmdir standa yfir færist starfsemin tímabundið yfir í Eyland sem eru kennslueiningar á lóð Fossvogsskóla. Mjög góð aðstaða er þar fyrir börn í leik og námi, sem mun nýtast starfinu vel næstu mánuði.
Endurbæturnar á húsnæði Kvistaborgar munu m.a. ganga út á að:
- Stækkun húsnæðis
- Aukið við lofthæðina í húsunum
- Þak verður endurnýjað
- Hljóðvist bætt með nýju loftaefni
- Ljósvist verður bætt
- Loftræsting verður sett í allt húsið
- Gluggar endurnýjaðir
- Hiti settur í gólf
- Hús einangrað að utan
- Ný gólfefni
- Allt húsnæðið málað
- Salerniskjarnar verða endurnýjaðir
Hvernig gengur?
25. nóvember 2022
Hönnun og þarfagreining hefur verið í höndum Arkþing Nordic ehf arkitekta og Mannvits. Gert er ráð fyrir að útboðsgögn fyrir framkvæmdina verði tilbúin 2024.
13. október 2021
Vinna við smíði á þeim færanlegu kennslustofum sem komið verður upp á lóð Kvistaborgar gengur vel. Stofurnar verða byggðar að fullu hjá seljanda og fluttar fullbúnar í Fossvoginn. Þær verða með svipuðu sniði og nýjar stofur við leikskólann Gullborg við Rekagranda, þó ekki af nákvæmlega sömu stærð og ytri hönnun verður í stíl við þær byggingar sem eru fyrir á lóðinni. Við látum fylgja með myndir af Gullborgarstofunum til að gefa mynd af því sem má búast við.
Til viðbótar verður áfram hægt að nota stoðrými, sal og eldhús og svo verða settar upp tvær færanlegar einingastofur til viðbótar til að auka það húsrými sem leikskólinn hefur til umráða á meðan framkvæmdatíma stendur. Þessar einingastofur eru frá sama framleiðanda og stofurnar við Fossvogsskóla og í leikskólanum Laugasól í Laugalæk.
15. september 2021
Húsnæðismál Kvistaborgar eru til athugunar hjá eignaskrifstofu og skóla og frístund. Verið er að skoða hvaða leiðir verða farnar í endurgerð Kvistaborgar áður en framkvæmdir hefjast. Skrifstofa framkvæmda og viðhalds heldur utan um greiningu á húsnæðinu og hefur fengið Eflu til þess að meta ástand húsnæðisins.
2. desember 2021
Verktaki kom með kennslustofur á lóð skólans 2.des. Fyrirhugaðar kennslueiningar sem verða á bílastæði eru væntanlegar um 10.des. Töluverður undirbúningur hefur verið fyrir komu kennslustofanna og hefur vinna verktaka staðið yfir síðastliðnar vikur. Meðfram þessari vinnu hefur verið gerður stoðveggur sem afmarkar lóð leikskólans við göngustíg og bílastæði.