Reykjavík City parking garages

Reykjavík City operates seven parking garages in and around the city center. They are open daily from 7 a.m. to midnight and offer short-term parking, with long-term parking permits also available. Here you can find each garage's location, available spaces, rates, and payment options.

Langtímastæði (áskrift) er fyrir bíla í daglegri notkun. Bílahúsin eru ekki ætluð til geymslu á bílum, tjaldvögnum, kerrum eða öðrum ökutækjum. Ökutæki án skráningarmerkja og önnur óheimil ökutæki geta verið fjarlægð á kostnað eiganda.

Aðgangur fyrir P-korthafa hreyfihamlaðra í bílahús

Regluleg notkun P-korthafa í bílahúsum Reykjavíkurborgar:

Í fyrsta sinn þarf að senda póst á bilahus@reykjavik.is og taka fram:

  • Bílnúmer P-korts og gildistíma.
  • Nafn á bílahúsi og taka fram ef um fleiri en eitt bílahús er að ræða.

P-kortið þarf að vera vel sýnilegt á mælaborði við eftirlit.

Skráning gildir í ár eða í samræmi við gildistíma P-korts.

Leggja í eitt skipti með P-kort í bílahúsum Reykjavíkurborgar:

  • Hringja í síma 4113403 þegar búið er að leggja.
  • Tilkynna að um sé að ræða P-kort og gefa upp bílnúmer. 
  • P-kortið þarf að vera vel sýnilegt á mælaborði við eftirlit.

Skráning gildir í eitt skipti.

Gjaldskrá

Upplýsingar um verð fyrir skammtímastæði og mánaðargjöld fyrir langtímastæði í bílahúsum Reykjavíkur.