The Lady of the Mountain 2007
Sólveig Arnarsdóttir was the Lady of the Mountain in 2007. Þórarinn Eldjárn wrote her address.
Address by the Lady of the Mountain
Að eiga sér stað
í staðlausum heimi
eiga þar heima
eiga heima í heimi
eins og ekkert sé.
Eiga þar
varnarþing
viðspyrnu
vé.
Að eiga sér mál
í málóðum heimi
sækja í þann sjóð
sagnir
fræði
poetry
enn og aftur
geta ekki hætt að gruna
né gleymt að muna.
Að eiga sér fjall
í flötum heimi
eiga þar skjól
skína við sól
láta sér lynda
leik regns og vinda.
Eiga þar
mark
mið
kennileiti.
Fjall
að horfa á
inn til lands
að horfa af
út yfir haf.
Fjall
kona
karl
er allt
sem
þarf
í arf.
Það er sú þrenning
sem rímar á móti menning.