17. júní - Aðgengi
Auðlesin texti
Á þjóðhátíðardaginn 17. júní verður fjölbreytt dagskrá.
Skrúðganga verður frá Hallgrímskirkju. Tónleikar, götuleikhúsið, dansveisla, sirkus, hoppikastalar og leiktæki, matarvagnar og fornbílasýningar í Hljómskálagarðinum.
Á tónleikunum koma fram;
- Páll Óskar
- Celebs
- Una Torfa
- Teitur Magnússon
Einnig mun Leikhópurinn Lotta og ýmsir danshópar koma fram.
Á Klambratúni verður plötusnúður og matarvagnar.
Strætó bílastæði og aðgengi
Allar helstu leiðir Strætó ganga í miðborgina á 17. júní, en gera má ráð fyrir einhverjum breytingum á leiðarkerfinu vegna götulokana (götulokunarkort hér). Upplýsingar um leiðarkerfið er að finna á heimsíðu Strætór á www.straeto.is.
Aðgengi er í öll bílastæðahús á 17. júní,
Bílastæði fyrir hreyfihamlaða í nálægð við Hljómskálagarð er á Tjarnargötu, í bílakjallara Ráðhússins og við Túngötu.
Gott aðgengi er fyrir öll í Hljómskálagarð.
Allir viðburðir og þjónusta á vegum Reykjavíkurborgar skal mæta þörfum ólíkra hópa í samræmi við aðgengisstefnu Reykjavíkurborgar.