DPS - hvað er það?

Þjónustu- og nýsköpunarsvið Reykjavíkurborgar hefur boðið út þjónustu sérfræðinga í gegnum nýtt gagnvirkt innkaupakerfi eða svokallaðan DPS samning – Dynamic purchasing system.  

Helstu atriði

Þjónustan tekur meðal annars til sérfræðinga í gagnagrunnum, kerfisrekstri, Enterprise útstöðvarekstri, rekstri skýjaþjónustu, rekstri sýndarumhverfis, hugbúnaðarsérfræðinga, sérfræðinga í vöruþróun rafrænna lausna og í upplýsingatækni. 

Hægt er að sækja um þátttöku í gagnvirka innkaupakerfinu hvenær sem er á samningstímanum með því að skrá sig á útboðssíðu Reykjavíkurborgar. Öll innkaup innan samningsins fara fram á grundvelli lokaðra útboða. Þannig geta einungis þau sem skráð eru í viðkomandi hluta innan samningsins, tekið þátt í þeim útboðum. 

Samantekt þessi er einungis til upplýsinga og telst ekki hluti útboðsgagna. Öll útboðsgögn eru birt á útboðsvef Reykjavíkurborgar.

Leið 1: Innkaup á grundvelli einingaverða. 

Gert er ráð fyrir að lokuð útboð verði send út á 3-6 mánaða fresti þar sem óskað er eftir einingaverðum í fjórum tímaflokkum. Þegar keypt er inn þjónusta samkvæmt leið 1 mun Reykjavíkurborg senda verkbeiðni á þann aðila sem á hagkvæmasta tilboðið í viðkomandi tímaflokki og hefur sá aðili 24 klukkustundir til þess að staðfesta hvort hann taki verkefnið að sér. Berist ekki staðfesting innan 24 klukkustunda áskilur borgin sér rétt til að samband við þann aðila sem á næst hagkvæmasta tilboð o.s.frv. 

Leið 2: Verkefni sem útheimta meira en 500 klukkustunda vinnu. 

Þau sem skráð eru í gagnvirka innkaupakerfið, fá tilkynningu þegar nýtt útboð er birt innan samningsins.  

Samninginn má finna hér og til þess að sækja um í gagnvirka innkaupakerfinu, þarf að skrá sig á útboðssíðu Reykjavíkurborgar:  

Skilyrði fyrir skráningu er að: 

  • Umsækjendur þurfa að uppfylla ákveðnar kröfur vegna fjárhagsstöðu. 
  • Umsækjendur skulu vera skráðir í fyrirtækjaskrá eða vsk-skrá. 
  • Umsækjendur skulu vera í skilum með opinber gjöld. 
  • Umsækjendur skulu vera í skilum með lífeyrissjóðsiðgjöld. 
  • Umsækjendur skulu vera með jákvætt eigið fé.