Stöðumælar

Stöðumælar Bílastæðasjóðs taka mynt og allar helstu gerðir greiðslukorta. Mælarnir eru með kortalesara sem lesa örgjörva og snertilausa kortalesara.

Hvenær borga ég?

Hægt er að greiða í stöðumælana áður en gjaldskylda hefst. Aðeins er talið þann tíma sem gjaldskylda er í gildi og því er hægt að kaupa fyrir nokkra daga í einu. Það getur til dæmis borgað sig á gjaldsvæði 3 þar sem tveir fyrstu tímarnir eru dýrastir.

Ekki er lengur þörf á að setja miða á mælaborð þar sem bílnúmer er slegið inn við greiðslu en ef óskað er eftir sölukvittun eða tímamiða til áminningar þarf í lokin að velja að prenta út kvittun.

Miðar úr miðamælum gilda einnig við stöðumæla

  • Greiðsla á gjaldsvæði 1 gildir á gjaldsvæði 1, 2, 3 og 4.

  • Greiðsla á gjaldsvæði 2 gildir á gjaldsvæði 2, 3 og 4.

  • Greiðsla á gjaldsvæði 3 gildir eingöngu á gjaldsvæði 3.

  • Greiðsla á gjaldsvæði 4 gildir eingöngu á gjaldsvæði 4.

Leiðbeiningar

Kveikja á mælinum

Ýttu á OK til að halda áfram.

 

Ekki setja greiðslukort fyrr en leiðbeiningar á skjánum segja til um.

 

Setjið inn bílnúmer

Ef þú setur inn bílnúmer þarftu ekki að prenta út miða til að setja á mælaborðið. Ef þú setur ekki inn bílnúmer getur þú líka sett inn bókstafi (t.d. XX, lágmark tveir bókstafir) í staðinn, en þá þarftu að setja tímamiðann á mælaborðið á bílnum þannig að hann sé sýnilegur utanfrá. 

 

Ýttu á OK til að halda áfram. 

Greiðslumáti valinn

Ef þú borgar með peningum þá setur þú peninga (klink) í mælirinn þangað til þú hefur náð upphæðinni og tímanum sem þú þarft.

 

Ýttu á + ef þú vilt borga með greiðslukorti.

Velja upphæð og tíma

Ýttu á OK þegar þú ert komin með rétta upphæð og tíma.

Borga með greiðslukorti

Settu greiðslukortið upp að þráðlausa lesaranum eða inn í kortalesarann.

 

Athugaðu hvort að rétt upphæð sé á skjánum áður en þú borgar. Svo velur þú hvort þú ætlar að prenta út miða eða ekki. 

Þú þarft ekki að prenta út miða ef þú velur rétt bílnúmer strax í upphafi.