Félagsleg ráðgjöf
Félagsleg ráðgjöf hefur það markmið að hjálpa fólki til sjálfshjálpar með fjölbreyttum leiðum þannig að það geti sem best notið sín í samfélaginu.
Hvernig sæki ég um félagslega ráðgjöf?
Þú bókar símtal hjá ráðgjafa sem veitir félagslega ráðgjöf, leiðbeinir þér varðandi umsóknir um þjónustu sem hentar þínum þörfum og aðstoðar við gerð þeirra ef þörf er á.
Á ég rétt á félagslegri ráðgjöf?
Allt fólk 18 ára og eldra sem á lögheimili í Reykjavík getur leitað félagslegrar ráðgjafar hjá Reykjavíkurborg sér að kostnaðarlausu.
Hvernig ráðgjöf er í boði?
Fyrst færð þú ráðgjöf í gegnum síma. Ráðgjöfin getur snúið að mörgum þáttum, meðal annars fjárhagsaðstoð, stuðning við húsnæðisleit, virkni í atvinnuleysi og vegna skertrar starfsgetu.
Ráðgjafar vinna með fólki og veita því upplýsingar um ýmsa þjónustu og vísa áfram í úrræði sem henta hverjum og einum.
Hvað gerist næst?
Í sumum tilvikum er eitt símtal nóg. Í öðrum tilvikum er þörf á langvarandi ráðgjöf. Ráðgjafi leiðbeinir þér um næstu skref og skipuleggur frekari viðtöl ef þörf er á. Þá er gert samkomulag um félagslega ráðgjöf í formi einstaklingsáætlunar.
Endurhæfing og virkni
Í Virknihúsi er margvísleg endurhæfing og virkni í boði fyrir fólk sem er í félagslegri ráðgjöf. Markmiðið með þessum úrræðum er að bæta lífsgæði fólks og auka tækifæri þess í lífinu með áherslu á sjálfsstyrkingu, nám og bata.
Hvar fæ ég frekari upplýsingar?
Félagsleg ráðgjöf er veitt á grundvelli eftirfarandi laga: