Sjálfstætt starfandi leikskólar

Nær tuttugu sjálfstætt starfandi leikskólar eru með þjónustusamning með Reykjavíkurborg. Foreldrum sem vilja nýta sér þjónustu þeirra er bent á að hafa beint samband við leikskólana. Athygli skal vakin á því að börn sem skráð eru í sjálfstætt starfandi leikskóla falla út af biðlista í almennum leikskólum borgarinnar. Foreldrar geta sótt um flutning í almennan leikskóla borgarinnar í gegnum umsóknarkerfi Völu.