Askja
Sjálfstætt starfandi leikskóli með ungbarnadeild
Skógarhlíð 6
105 Reykjavík
Um leikskólann
Leikskólinn Askja er annar af tveimur Hjallastefnuskólum í Reykjavík og starfar nú í bráðabirgðahúsnæði að Skógarhlíð 6 í Reykjavík. Í skólanum er pláss fyrir 175 börn frá 12 mánaða til fimm ára en fimm ára kjarni er partur af Barnaskólanum í Reykjavík sem starfar í sama húsi.
Stjórnendur skólans eru Guðrún Silja Steinarsdóttir og Sigríður Ólöf Sæmundsdóttir.
Farsæld barna
Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.
Tengiliður Öskju er: Anita Ruebberdt