16271 Rammasamningur - Múrverk

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

Rammasamningur - Múrverk, EES útboð nr. 16271.

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar (hér eftir nefndur kaupandi) óskar eftir að fá einingarverð í tilfallandi vinnu vegna múrverks. Samningurinn gildir í þrjú ár

Um er að ræða útboð á rammasamning þar sem hvaða fyrirtæki sem er getur lagt fram tilboð. Rammasamningsútboð þetta er ekki loforð um ákveðið magn viðskipta. 

Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 10:00, þann 19. mars 2026.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 21. apríl 2026.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda