16271 Rammasamningur - Múrverk
F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Rammasamningur - Múrverk, EES útboð nr. 16271.
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar (hér eftir nefndur kaupandi) óskar eftir að fá einingarverð í tilfallandi vinnu vegna múrverks. Samningurinn gildir í þrjú ár
Um er að ræða útboð á rammasamning þar sem hvaða fyrirtæki sem er getur lagt fram tilboð. Rammasamningsútboð þetta er ekki loforð um ákveðið magn viðskipta.
Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 10:00, þann 19. mars 2026. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 21. apríl 2026.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda