Uppbygging Grænna skrefa

Teikning af húsi sem er eins og blómapottur í laginu og kona vökvar gróður á þakinu

Græn skref í starfsemi Reykjavíkur er aðgerðamiðað umhverfisstarf sem skipt er upp í fimmtán skylduaðgerðir og 66 viðbótaraðgerðir. Aðgerðunum er skipt upp í þrjá umhverfisflokka, umhverfismál, samgöngur og innkaup. Þessir þrír flokkar eru þeir sem valda mestum umhverfisáhrifum í rekstri borgarinnar og þar getum við látið til okkar taka á sem áhrifaríkastan hátt. 

Úrgangsmál

Í flokknum úrgangsmál er áhersla lögð á rétta flokkun úrgangs, réttar merkingar á flokkunarílátum og að ílát séu til staðar til söfnunar á öllum úrgangsflokkum. Í viðbótaraðgerðunum eru svo hugmyndir um hvað við getum gert til að draga úr matarsóun og annarri sóun og hvernig við getum aukið endurvinnslu á starfstöðvum Reykjavíkurborgar.

Teiknaðar táknmyndir fyrir fjóra flokka sorphirðu.

Samgöngur

Í flokkinum Samgöngur er lögð áhersla á að ferðast til og frá vinnu með virkum hætti. Það felur í sér að ferðir séu farnar gangandi, hjólandi, á hlaupahjóli eða í strætó. 

 

Vinnuveitendur geta hvatt fólk til að hvíla bílinn heima með því að betrumbæta innviði fyrir hjól eða hlaupahjól, bjóða upp á samgöngusamning, strætómiða til að nota á vinnutíma eða rafknúinn vinnubíl til að sinna vinnutengdum erindum. 

 

Grænt skref í samgöngum getur haft jákvæð áhrif á rekstur einingarinnar, fjárhag og heilsu starfsmanna auk þess að fela í sér samfélagslegan ávinning í lýðheilsu.

Maður að hjóla

Innkaup

Í gegnum grænu skrefin eru vistvæn innkaup innleidd hjá öllum stofnunum borgarinnar með því að gera innkaupagreiningu, þekkja umhverfismerkin og umbúðamerkingar og sjá til þess að þjónustuaðilar þeir sem stofnanir skipta við hafi virka umhverfisstefnu.

Teikning af starfsmanni við tölvu að vinna við þýðingar.