Um Ártúnsskóla

Ártúnsskóli er samrekinn grunnskóli, leikskóli og frístund. Nemendur eru u.þ.b. 255. Í grunnskólanum um 155 nemendur og í leikskólanum um 60 börn ár hvert. Skólasel er frístundaheimili Ártúnsskóla og er staðsett inni í skólahúsnæðinu. Þar er boðið upp á fjölbreytt tómstundastarf þegar hefðbundnum skóladegi 6 – 9 ára barna lýkur. Í skólanum er lögð áhersla á að allir fái að njóta sín í leik og starfi. Einkunnarorð skólans eru ÁRANGUR, VIRÐING OG VELLÍÐAN. 

 

Hlutverk og leiðarljós

Hlutverk Ártúnsskóla, í samvinnu við heimilin, er að stuðla að alhliða þroska nemenda og leggja grunn að virkri þátttöku þeirra í lýðræðisþjóðfélagi. Ártúnsskóli er skóli margbreytileikans þar sem nemendur eru virkir þátttakendur í skólasamfélaginu og lögð er áhersla á heildstæða menntun allra. Grunnþættir menntunar samkvæmt Aðalnámskrá 2011 eru hafðir að leiðarljósi í öllu starfi. Í skólanum er löng hefð fyrir kennslu í umhverfismennt og hefur grunnskólinn verið handhafi grænfánans frá árinu 2008. Leikskóladeildin gerðist síðan formlega þátttakandi við þriðju afhendingu fánans í maí 2013. Í grenndarskógi skólans er góður aðbúnaður fyrir útikennslu allra árganga og deilda skólans. 

Heilsueflandi skóli

Skólinn gerðist þátttakandi í verkefni Landlæknisembættisins um Heilsueflandi skóla árið 2010. Eitt helsta markmið Heilsueflandi skóla er að vinna markvisst að því að efla og stuðla að velferð og góðri heilsu nemenda og starfsfólks. Í skólastarfinu er fléttað saman viðfangsefnum Heilsueflandi skóla og skóla á grænni grein.

 

Skólavinir

Áhersla er lögð á að efla félagsfærni og jákvæð samskipti nemenda. Allir bekkir grunnskólans eiga vinabekk og 4. bekkur er vinabekkur fimm ára nemenda leikskólans. Elstu börn í leikskóladeild taka þátt í starfi grunnskólans m.a. með heimsóknum í árganga, heimsóknum á bókasafn og frístund, íþróttatímum í íþróttahúsinu, hringekju þar sem unnið er þemaverkefni með 1.bekk og frístund og þátttöku á uppbrotsdögumt. 

Nemendur á miðstigi eru skólavinir, þau skiptast á að gæta og aðstoða yngri nemendur í frímínútum, stjórna leikjum í frímínútum, fylgja þeim á Föstudagssamverur og aðrar uppákomur á skólaárinu. Ennfremur er áhersla lögð á samstarf og samvinnu. Með reglulegu millibili er skólastarfið brotið upp og árgöngum blandað saman.

Fjölbreyttir kennsluhættir

Í Ártúnsskóla er lögð áhersla á fjölbreytta kennsluhætti til þess að koma til móts við margbreytilegan nemendahóp. Læsi er í hávegum haft á öllum skólastigum. Í skólanum er bókasafn sem býr yfir góðum bókakosti. Árlegum lestrarspretti er stýrt af safninu og auk þess sækja allir nemendur skólans sér lestrarefni á bókasafnið.

Á leikskóladeild er m.a. unnið með könnunaraðferðina á eldri deildum sem byggir á áhugasviði barnanna  og könnunarleikinn á yngstu deildinni en hann tengist könnunarnámi þar sem virkni barnsins er mikilvæg. Í dagskipulagi er m.a.  útikennsla, íþróttir,  listasmiðja og hópastarf.