Táknkerfi kynjanna

Verkefni sem byggir á heimildamyndinni The Gender Code. Hægt er að nota þetta efni í kynjafræðslu, jafnréttisfræðslu, félagsfræði og fl.

 

Um verkefnið

Jafnrétti - staðalímyndir - Kynhlutverk

Tenging við menntastefnu: Félagsfærni, Sjálfsefling

Gerð efnis: Ítarefni, Verkefni

Markhópur: 13-16 ára

Viðfangsefni: Jafnrétti, Sjálfsmynd, Sjálfstraust, Staðalmyndir

Táknkerfi kynjanna

Nemendur glósa og svara þessum spurningum:

  • Hvað er átt við með táknkerfi kynjanna?
  • Hver er sýn poppmenningar á kynin?
  • Hvernig flokkum við fólk út frá merkjum? Hver eru þessi merki? Skipta þessi merki máli upp á samskipti?
  • Um hvað fjallar Ervin Goffman?
  • Hvað segja auglýsingar okkur um okkur sjálf?
  • Er kynvitund náttúruleg? – Hverskonar ferli á sér stað þegar kemur að kynvitund?
  • Hver er munurinn á hugtökunum kyn og kynvitund?
  • Karlmennska (e. masculine) eða kvenska (e. feminine) í vestrænum samfélögum hefur verið skilgreint að miklu leiti í tvíhyggju, hvernig er þetta skilgreint?
  • Hvernig lærum við að senda kynjamerkin eða kyngervistákn og hvað þýða þessi hugtök?
  • Hvað er auglýsingarraunsæi?
  • Af hverju er Goffman að einbeita sér að auglýsingum í sinni greiningu?
  • Hvað er átt við með kvenleg snerting?
  • Hvað er átt við með hefðbinding undirokunar?
  • Hvernig er undirokun og kvenskan tengd saman?
  • Hvernig er valdaleysið og klámvæðingin tengd saman?
  • Í gegnum auglýsingar hvernig má sjá muninn á hvernig við setjum fram karlmenn og konur?

Nemendur glósa og svara þessum spurningum:

  • Hvað er feimnislega hnébeygjan?
  • Það er ítrekað komið inn á varnarlausar og viðkvæmar, við hvað er átt?
  • Hvernig er talað um að konur eru gerðar hjálparvana? Hver er andstæðan og hvernig er þetta tengt dýraríkinu?
  • Hvað er átt við með heimil óvirkni? Hvernig birtist hún og hver er andstæðan, hvernig birtast þá menn?
  • Hvað er átt við með barngervingu?
  • Hvernig birtist barngerving? Af hverju er talað um að konur gangi aldrei úr barndómi?
  • Hver eru tákn karlmennskunnar?
  • Hvernig er karlmennskan skilgreind?
  • Takið dæmi um hvernig karlmennskan er sýnd í gegnum auglýsingar og myndmiðla?
  • Hvernig er sannfært gagnkynhneigða menn um karlmennsku í auglýsingar sem byggðar eru á hvernig samkynhneigðir menn eru sýndir?
  • Hvernig birtist fordómar fyrir samkynhneigð í því að þurfa að nota konur, til að selja karlmönnum tísku?
  • Hvernig eru líkamar karlmannanna og hvernig tengist það að draga úr „hommaerótík“?
  • Nemendur glósa og svara þessum spurningum:
  • Erum við föst í kóðanum?
  • Hvernig má færa rök fyrir því að „tough girls“ séu ennþá fastar í kóðanum?
  • Hvernig birtist kóðinn jafnframt í íþróttum?
  • Hvernig hafa þessi tákn verið mótuð í gegnum tímanna rás?