Sléttan

Félagsstarf

Sléttuvegur 25–27
103 Reykjavík

Teikning af inngangi Sléttunnar

Opnunartími

Félagsstarfið í Sléttunni er opið alla virka daga kl. 9:00–17:00

  • Hádegismatur kl. 11:50–13:00 alla virka daga (matarpöntun þarf að berast fyrir kl. 13 daginn áður)
  • Kaffihús opið kl. 13:00–17:00 alla daga

Þjónusta

  • Fótaaðgerðastofa, Ásta - símar 585 3218 og 699 1826
  • Hársnyrtistofa Tunglið - símar 5853219 og 848 8920

Strætó

Strætisvagnar sem stoppa nálægt eru leiðir 13, 14 og 18.

Um félagsstarfið

Sléttan er heiti lífsgæðakjarna við Sléttuveg 25-27. Þar er félagsmiðstöð rekin í samvinnu Reykjavíkurborgar og Hrafnistu, en auk þess er þar að finna hjúkrunarheimili Hrafnistu, leiguíbúðir Naustavarar og dagdvölina Röst. Allar nánari upplýsingar má finna á vef Sléttunnar.

Félags- og tómstundastarfið í Sléttunni er opið öllu fólki óháð aldri. Boðið er upp fjölbreytta dagskrá með fræðslu, skemmtunum og uppákomum af ýmsu tagi. Ekki þarf að sækja sérstaklega um þátttöku, aðeins mæta á staðinn. Ef fyrirhuguð er þátttaka í námskeiðum með fjöldatakmörkunum þá þarf að skrá þátttöku fyrirfram.

Í Sléttunni er lögð er áhersla á sjálfsprottið félagsstarf sem hver og einn getur haft áhrif á og mótað. Starfsfólk tekur öllum hugmyndum fagnandi - ekki hika við að hafa samband viljir þú hafa frumkvæði að félags- eða tómstundastarfi á Sléttunni.  Markmið félagsstarfsins er að fyrirbyggja og draga úr félagslegri einangrun. Það er vettvangur samfunda, mannlegra samskipta og skapandi athafna. Leitast er við að virkja frumkvæði og hæfileika hvers og eins.