Málmblásturshljóðfæri

Teiknuð mynd af baritónhorni

Básúna, horn, trompet, barítónhorn og túba eru í flokki málmblásturshljóðfæra. Mikið er til af samleiksverkum fyrir málmblásara. Algengust eru kvintettar, kvartettar og tríó en einnig er talsvert um verk fyrir stærri hópa, svo sem lúðrasveitir og málmblásarakóra. Mikilvægt er að nemendum á málmblásturshljóðfæri gefist tækifæri til að kynnast þessari tónlist, gjarnan í reglulegu starfi samleikshópa.

Trompet

  • Nám á trompet getur hafist þegar nemendur hafa líkamlega burði til að leika á hljóðfærið og fullorðinsframtennur eru komnar á sinn stað. Oftast 8-10 ára.
  • Trompetar eru til í mörgum stærðum og tóntegundum en algengastur er trompet í B. Hann er grunnhljóðfæri í öllu trompetnámi og nánast einráður í lúðrasveitum og rytmískri tónlist. Minni trompetar, svo sem D-, Es- og piccolotrompet í B eða A, eru einkum notaðir til að leika eldri trompetkonserta og nútímatónlist. Í sinfóníuhljómsveitum er C-trompet algengastur en B-trompet og minni trompetar eru einnig talsvert notaðir. 
  • Kornett og flygilhorn hafa verið í notkun síðan snemma á 19. öld. Kornett var afar vinsæll um aldamótin 1900 og var þá mikið skrifað af glæsilegum einleiksverkum fyrir hann. Nú til dags er flygilhorn algengast sem aukahljóðfæri trompetleikara í stórsveitum og öðrum djasshljómsveitum.
Teiknuð mynd af Trompet

Básúna

  • Nám á básúnu getur hafist þegar nemendur hafa líkamlega burði til að leika á hljóðfærið, oftast um 9-10 ára aldur. Básúnur eru til í ýmsum stærðum og gerðum. Námskrá gerir ráð fyrir að algengasta gerðin, tenórbásúnan, sé notuð sem aðalhljóðfæri. Mælt er með því að ungir byrjendur noti létt hljóðfæri með grönnum pípum (t.d. medium eða small bore) og hæfilega stórt munnstykki. 
  • Töluvert er til af tónlist fyrir básúnu, bæði einleiks- og samleiksverkum. Mikill meirihluti kennslubóka er ætlaður tenórbásúnu en sérstakar kennslubækur eru til fyrir alt- og bassabásúnu. Básúnan er notuð í flestum tegundum tónlistar: sígildri-, blásara-, djass-, dægur- og samtímatónlist. 
Teiknuð mynd af básúnu í gulum lit.

Barítónhorn

  • Barítónhorn eru til í mismunandi stærðum og hafa mismunandi nöfn í ólíkum löndum, s.s. tenórhorn, barítón, euphonium og jafnvel tenórtúba. Í talmáli er heitið þó oftar en ekki stytt í barítón. Hér á landi hefur hljóðfærið verið nefnt barítónhorn eða tenórhorn.
  • Nám á barítónhorn getur hafist þegar nemendur hafa líkamlega burði til að leika á hljóðfærið. Oftast við 8-9 ára aldur. Barítónhorn fást ýmist með þremur eða fjórum ventlum. Algengast er að nemendur hefji nám á hljóðfæri með þremur ventlum en skipti síðar yfir í fullkomnara hljóðfæri. Fjórði ventillinn auðveldar leik djúpra tóna og eykur nákvæmni í inntónun.
  • Fremur lítið er til af tónlist sem sérstaklega er samin fyrir barítónhorn. Nemendur nýta sér því gjarnan nótur sem skrifaðar eru fyrir önnur hljóðfæri, s.s. trompet, básúnu, selló, fagott eða túbu. Barítónhornið er mest áberandi í ýmiss konar blásaratónlist en einnig er það stöku sinnum notað í sinfónískum verkum.
Teiknuð mynd af baritónhorni

Horn

Nám á horn getur hafist þegar nemendur hafa náð nægilegum líkamsþroska til að halda á hljóðfærinu, oftast er það um 12 ára aldur. Þó eru til hljóðfæri sem eru sérstaklega hönnuð fyrir yngri nemendur. Algengt er að nemendur læri fyrst á annað minna málmblásturshljóðfæri svo sem trompet, kornett eða althorn. 

Til eru þrenns konar hljóðfæri fyrir byrjendur: einfalt F-horn, einfalt B- horn og tvöfalt horn í F/B. Allar þessar tegundir hafa sína kosti og galla. Með notkun þumalventils sameinar tvöfalda hornið F- og B-hornin í eitt hljóðfæri og gefur nemendum þannig tækifæri til að nýta kosti beggja. Gott tvöfalt horn með meðalstóra bjöllu telst því besti kosturinn fyrir nemendur á flestum stigum námsins og nauðsynlegt fyrir nemendur í miðnámi. Rétt er að benda á að tvöfalt horn er dýrara og þyngra en einfalt horn.

 

Horn í gulum lit á hvítum grunni

Túba

Túba er stórt og fyrirferðarmikið hljóðfæri. Því er æskilegt að nemendur hefji nám á minna málmblásturshljóðfæri. Þess má þó geta að á síðari árum hafa verið hannaðar minni túbur sérstaklega með unga nemendur í huga. Nám á túbu getur hafist þegar nemendur hafa líkamlega burði til að leika á hljóðfærið, oftast við 10-12 ára aldur. 

Tónlistarskólar og lúðrasveitir eiga oft túbur til láns vegna þess hve dýrar þær eru. Túbur eru til í mörgum stærðum og gerðum. Algengastar eru túbur í B eða Es og miðar námskráin við að notuð séu slík hljóðfæri. 

Túbunni bregður fyrir í öllum tónlistarstefnum en fyrst og fremst er hún notuð í lúðrasveitum, sinfóníuhljómsveitum og kammerhópum. Þó að túban sé ekki dæmigert einleikshljóðfæri er til talsvert af einleiksverkum fyrir hljóðfærið en mörg þeirra eru umritanir verka fyrir önnur hljóðfæri, svo sem selló og trompet.

Teiknuð mynd af Túbu