Seljahlíð

Hjúkrunarheimili

Hjallasel 55
109 Reykjavík

""

Um Seljahlíð

Hjúkrunarheimili eru fyrir þá sem geta ekki búið sjálfstætt. Á dvalar- og hjúkrunarheimilum er sólarhringsþjónusta og öldrunarlæknisþjónusta. Einnig er boðið upp á sjúkra- og iðjuþjálfun, fótsnyrtingu, hárgreiðslu, hreyfiþjálfun og böðun auk þess sem þar er hægt að stunda ýmis konar tómstundaiðju.

Ferill umsóknar/þjónustu

Hægt er að sækja um eða fá nánari upplýsingar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í Álfabakka 16, 109 Reykjavík, sími 513 5000. Aflað er upplýsinga um getu og aðstæður umsækjanda. Leitað er upplýsinga um líkamlegt og andlegt heilsufar, félagslegar aðstæður svo sem fjölskylduaðstæður, og hvort og þá hvaða aðstoðar umsækjandi nýtur. Athugað er hvernig umsækjanda gengur að bjarga sér við athafnir daglegs lífs, persónulega umhirðu og heimilisstörf. Þegar sótt er um pláss á hjúkrunarheimili þarf að liggja fyrir svokallað færni- og heilsumat. Færni- og heilsumat er faglegt mat á þörf fólks, óháð aldri, fyrir varanlega vistun í hjúkrunarrými eins og þau eru skilgreind í lögum um málefni aldraðra og lögum um heilbrigðisþjónustu. Einungis þarf að skila umsókn undirritaðri af umsækjanda. Þegar færni- og heilsumat liggur fyrir er umsækjanda sent skriflegt svar. Ef færni- og heilsumat er samþykkt eru niðurstöður notaðar til að forgangsraða á biðlista í hjúkrunarrými.