02. tillaga um Sæbrautarstokk

Tillaga Yrki arkitekta, Dagný Land Design og Hnit verkfræðistofu.

Ný byggð ofan á Sæbrautarstokk tengir saman hið rótgróna Vogahverfi við nýja hverfi Vogabyggðar. Stokkurinn skapar einnig nýja og sterkari tengingu Vogahverfis við Elliðaárnar og Elliðaárdal. Við þetta verður til samfelld byggð frá Laugardal að Elliðaárdal.

Nánar

Nýjar byggingar á stokknum eru framlengdar frá lóðum austan við Sæbraut. Þannig brúa nýjar byggingar Vogabyggð við Vogahverfi.

Ný byggð ofan á stokknum

Ný byggð ofan á Sæbrautarstokk tengir saman hið rótgróna Vogahverfi við nýja hverfi Vogabyggðar. Stokkurinn skapar einnig nýja og sterkari tengingu Vogahverfis við Elliðaárnar og Elliðaárdal. Við þetta verður til samfelld byggð frá Laugardal að Elliðaárdal.

Nýjar byggingar á stokknum eru framlengdar frá lóðum austan við Sæbraut. Þannig brúa nýjar byggingar Vogabyggð við Vogahverfi.

Staðsetning og lega húsa taka mið af því að skapa spennandi og skjólsæl almenningsrými milli húsanna. Byggðin er síðan mótuð og brotin upp til að tryggja sólrík svæði milli húsanna. Hæðir og umfang húsa taka einnig mið af aðliggjandi byggð svo að nýjar byggingar falli vel að núverandi byggð. Byggingarnar móta síðan áhugavert samspil inngarða, leiksvæða og torga sem eru tengd saman með stígum og götum.

Myndband sem sýnir Sæbraut í stokk - Tillaga Yrki arkitekta, Dagný Land Design og Hnit verkfræðistofu.

Útfærsla á stokki

Stokkurinn nær frá gatnamótum Skeiðarvogs og Sæbrautar að mislægum gatnamótum við Vesturlandsveg. Við þetta detta út tvö ljósastýrð gatnamót á Sæbraut, við Skeiðarvog og Súðarvog.

Suðurlandsbraut tengist Dugguvogi yfir stokk. Gert er ráð fyrir meginumferð bíla eftir Dugguvogi, þaðan sem aðgengi er að íbúðagötum og samrými.

 

Tölvugerð mynd af garði, fólki og gangstétt við nýju Vogabyggð.
Inngarðar og torg í íbúðabyggð, horft til norðurs.

Nýr hverfiskjarni

Með tilkomu Borgarlínu í hverfið verður til enn sterkari tenging fyrir íbúa við aðra hluta borgarinnar og höfuðborgarsvæðið.

Kjarnastöðvar Borgarlínu eru samgöngumiðstöðvar þar sem gera má ráð fyrir mikilli umferð gangandi vegfarenda. Stöðvarnar eru mikilvægir tengipunktar í leiðarkerfi Strætó og Borgarlínu. Slíkt skapar nýjar forsendur fyrir verslanir og þjónustu sem reiða sig á mikla umferð fólks. Þannig verður til hvati til að reka verslun og þjónustu í og við kjarnastöðvar.

Lagt upp með að staðsetja meirihluta verslana og þjónustu í og við kjarnastöðina þannig að nýr hverfiskjarni verður til.

Tölvugerð mynd af hugmynd um Vogatorg. Strætó gengur milli húsa og gróðurs.
Vogatorg við kjarnastöð Borgarlínunnar.

Kjarnastöðin

Kjarnastöð Borgarlínu er staðsett ofan á stokknum við enda Súðarvogs og Dugguvogs. Suðurlandsbraut er framlengd og mætir Dugguvogi við kjarnastöðina. 

Við kjarnastöðina er byggðarkjarni undir verslun, þjónustu og skrifstofur.

Kjarnastöð við enda Dugguvogs skapar forsendur fyrir frekari uppbyggingu á verslun og þjónustu við götuna og er starfsemi beint þangað. Dugguvogur verður þannig þjónustu- og verslunargata hverfisins.

Staðsetning stöðvarinnar, mitt á milli Vogahverfis og Vogabyggðar, gerir hana aðgengilega báðum hverfum. 

Vogatorg

Kjarnastöðin og byggingarnar við hana mynda nýtt torg, Vogatorg, sem opnast til suðurs.

Byggðin mótar skjól fyrir norðanáttum á torginu og gert er ráð fyrir að starfsemi jarðhæða geti opnað sig út á torgið.

Dugguvogur í samrými fyrir gangandi og hjólandi

Eins og komið hefur fram er tillagan byggð fyrst á forsendum gangandi vegfarenda. Gangandi fara hægar yfir og hafa því tækifæri til að upplifa og skynja umhverfi sitt betur. 

Þannig er vel gætt að þéttu neti gönguleiða eftir götum og stígum milli almenningssvæða svo að svæðið bjóði bæði upp á skilvirkar gönguleiðir til að ferðast eftir en líka góða og fjölbreytta upplifun ef löngun verður til að taka lengri leiðina heim.

Tölvugerð mynd af samgöngum við nýju Vogabyggð. Strætó keyrir um hverfið.
Dugguvogur, horft til norðurs.
Bein tenging frá Vogaskóla og Menntaskólanum við Sund er tryggð með því að breyta Snekkjuvogi í samrými (e. shared space) þar sem gangandi og hjólandi umferð getur haldið áfram inn í Vogabyggð frá Barðavogi en bílaumferð kemst þar ekki yfir stokkinn. 

Hafa samband

Verkefnið heyrir undir embætti skipulagsfulltrúa á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar.