Gender Equality Academy
The Gender Equality School creates a platform for education, counseling, and support regarding equality education, human rights, and sexual health. It serves City staff in school and recreational activities, as well as children and parents when applicable.
The Gender Equality School received the 2023 Icelandic Education Awards' Incentive Prize for its invaluable work in sharing knowledge and providing advice to SFS managers and staff on equality and sexual health issues.
Verkfærakistur, átök og fræðsluefni
- Verkfærakista leikskóla Verkefni, kennsluleiðbeiningar, bækur, myndbönd og vefsíður.
- Verkfærakista yngsta stigs Verkefni, kennsluleiðbeiningar, bækur, myndbönd og vefsíður.
- Verkfærakista miðstigs Verkefni, kennsluleiðbeiningar, bækur, myndbönd og vefsíður.
- Verkfærakista unglingastigs Verkefni, kennsluleiðbeiningar, bækur, myndbönd og vefsíður.
- Vika6 Árlegt kynfræðsluátak í leik-og grunnskólum.
- Frá tabú í traust Kynfræðsla yngri barna, netnámskeið, bæklingar og úrræði.
- Ertu normal? Árlegt ljósmyndaverkefni fyrir unglingastig.
- Spurt og svarað um kynfræðslu Ýmis svör og ráð varðandi alhliða kynfræðslu.
From taboo to trust
Five educational videos for parents of younger children (preschool and youngest level) covering sex education and prevention of sexual abuse.
Hlutverk Jafnréttisskólans
Samkvæmt íslenskum lögum, aðalnámskrá grunnskóla, menntastefnu Reykjavíkurborgar, samþykktum þingsályktunum og alþjóðlegum samningum eru íslensk stjórnvöld skuldbundin að tryggja fræðslu um kynheilbrigði, mannréttindi og kynjajafnrétti í skólakerfinu. Allt efni Jafnréttisskólans miðar að því að framfylgja þeim ákvæðum og lögum og byggir á þema UNESCO um alhliða kynfræðslu.
Allt kynfræðsluefni á vegum Jafnréttisskólans er aldursgreint og miðar við þroska barna og ungmenna hverju sinni. Hægt er að lesa meira um áherslur kynfræðslu í grunnskólum hér að neðan.
Vika6
Vika6 er eitt þekktasta verkefni Jafnréttisskólans en átakið fer fram í sjöttu viku árs hvers.
Í tilefni þess gefur Jafnréttisskólinn út ýmist efni tengt alhliða kynfræðslu fyrir leikskóla, yngsta stig, miðstig og unglingastig grunnskóla. Þema hvers árs er ákveðið af ungmennum borgarinnar.
Starfsfólk leikskóla, grunnskóla, félagsmiðstöðva og frístundaheimila er hvatt til að setja kynheilbrigði í forgrunn og bjóða upp á fjölbreytta kynfræðslu sem miðar að aldri og þroska ungmennanna.
Hvað er alhliða kynfræðsla?
Alhliða kynfræðsla snýst um að huga að sem flestum þáttum kynheilbrigðis; líkamlegum, félagslegum og tilfinningalegum þáttum.
Til að tryggja að kynfræðsla sé árangursrík og valdeflandi, hjálpi ungmennum að þekkja líkama sinn, setja og virða mörk og gera sér grein fyrir því hvað felst í heilbrigðum samskiptum, er nauðsynlegt að bæði starfsfólk og foreldrar taki virkan þátt í þeirri vinnu.
Hér að neðan er algengum spurningum svarað og veitt ýmis ráð varðandi kynfræðslu barna og ungmenna.