Miðja máls og læsis

Teiknuð mynd af börnum að lesa og skrifa við borð í skólastofu.

Miðja máls og læsis veitir fræðslu, ráðgjöf og stuðning í skóla- og frístundastarfi í Reykjavík. 

Hægt er að hafa samband við Miðju máls og læsis í gegnum netfangið mml@reykjavik.is

Spurt og svarað um Miðju máls og læsis

Hvað gerir Miðja máls og læsis?

Miðja máls og læsis er þekkingarteymi á vegum Reykjavíkurborgar sem fer á vettvang og veitir kennurum og starfsfólki í skóla- og frístundastarfi stuðning, ráðgjöf og fræðslu varðandi málþroska, læsi, íslensku sem annað mál, fjöltyngi og fjölmenningu.

Hverjir starfa hjá Miðju máls og læsis?

Hjá Miðju máls og læsis starfa sérfræðingar í málþroska, læsi, íslensku sem öðru tungumáli, fjöltyngi og fjölmenningu. 

Brúarsmiðir eru sérfræðingar í tungumálum og menningarmiðlun. 

Læsisráðgjafar í leik- og grunnskólum eru sérfræðingar í málþroska og læsi.

Ráðgjafar vegna barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn í grunnskólum eru sérfræðingar í móttöku og kennslu íslensku sem annars tungumáls. 

Verkefnastjórar fjölmenningar í skóla- og frístundastarfi eru sérfræðingar um inngildandi starfhætti.

Hver getur óskað eftir aðstoð frá Miðju máls og læsis?

Allt starfsfólk í skóla- og frístundastarfi getur óskað eftir ráðgjöf eða stuðningi frá Miðju máls og læsis.

Stjórnendur í skóla- og frístundastarfi geta óskað eftir fræðslu eða námskeiðum fyrir stóra eða smáa hópa innan sinnar starfsstöðva.

Foreldrafélög í Reykjavík geta óskað eftir fræðslu eða stuðningi.

Hvers konar aðstoð er í boði?

Hjá Miðju máls og læsis starfa sérfræðingar í máltöku, málþroska, læsi, fjöltyngi, kennslu íslensku sem annars máls, foreldrasamstarfi, starfsþróun og fjölmenningarlegum starfsháttum. MML getur einnig haft milligöngu um að finna sérfræðing á viðkomandi sviði þegar þekking er ekki til staðar innan MML.

Fræðslu er hægt að sníða að þörfum hvers og eins. Hvort sem beðið er um stutt erindi, námskeið, fræðslufundi, vinnufundi eða styttri ráðgjöf eða ráðgjöf með eftirfylgd.

Hvernig er hægt að óska eftir aðstoð?

Best er að senda póst á mml@reykjavik.is og taka fram hvers konar ráðgjöf eða fræðslu er óskað eftir. 

Miðja máls og læsis

Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur
Borgartúni 12-14
5. hæð
105 Reykjavík
s. 411 1111 

 

Deildarstjóri Miðju máls og læsis er Dröfn Rafnsdóttir