Mál og læsi

Teiknuð mynd af börnum að tala saman á táknmáli.

Mál felur í sér að börn læri að nota orð, bendingar og hljóð til að eiga samskipti við aðra og afla sér þekkingar. 

Málþroski er orðið sem er notað til þess að útskýra hvernig börn læra tungumál. 

Málþroski þróast alla ævi og hefur áhrif á læsi. Til þess að ná tökum á læsi þarf góðan skilning á tungumálinu.

Talið við börn og unglinga

Það að ná tökum á máli og læsi er samvinnuverkefni margra. Foreldrar gegna veigamesta hlutverkinu en allir sem eiga í samskiptum við barnið hafa áhrif á málþroska þess.

Verjið tíma í samveru og spjall. Skrafið saman og hafið gaman. 

  • Talið um það sem fjölskyldan er að gera og rifjið upp atburði úr lífi barnsins.
  • Venjið ykkur á að setja orð á allar athafnir.
  • Búið til venjur á heimilinu sem auðvelda samskipti. Snjalltæki, tölvur, skjáir og hátt stillt tónlist eða annar hávaði getur hindrað samskipti.
  • Talið saman um heiminn í kringum ykkur. Umhverfið, fólkið og málefni líðandi stundar.
  • Kryfjið málin með samræðum. Spyrjið opinna spurninga sem ekki er hægt að svara með einföldu já eða nei.

Forðist að leiðrétta málfar. Reynið frekar að endurtaka það sem sagt var á réttan hátt. 

Teikning af tveimur börnum að lita á leikskóla.

Fullorðnir eru fyrirmyndir

Það sem börn sjá foreldra sína gera gefum gefur börnum mikilvægar upplýsingar um hvað er æskileg hegðun.

  • Sýnið áhuga á bókum, lesefni og lestri. Deilið því sem þið lásuð eða upplifun ykkar af lesefninu.
  • Látið barnið sjá að þið njótið þess að lesa bækur og tímarit
  • Látið barnið sjá ykkur nota matreiðslubækur, fræðibækur, brandarabækur o.fl.
  • Skrifið niður minnismiða t.d. fyrir matarinnkaupin og hafið barnið með

Heimalestur

Heimalestur felur í sér mikilvæga þjálfun, bæði í lestri, lesskilningi og viðhorfum barns til lesturs og náms. 

Veitið barninu óskipta athygli þegar þið hlustið á barnið lesa. 

Beinið athygli barnsins að merkingu textans, spyrjið spurninga bæði úr lesefninu og út fyrir lesefnið. 

Fagnið öllum litlum sigrum og hvetjið barnið áfram. 

Mál

Hljóðkerfisvitund

Hljóðkerfisvitund er sá hluti málþroskans sem tengist lestri. Þegar við höfum áttað okkur á að málið er sett saman af hljóðum og þegar við getum talað um þessar smáu einingar málsins þá fyrst erum við tilbúin að læra að lesa.

Færni í hljóðkerfisvitund er mikilvæg til að eiga möguleika á að ná góðum tökum á lestri.

Lesskilningur

Lesskilningur felur í sér skilning á merkingu orða og setninga. Í honum felst einnig málskilningur, þ.e. skilningur á töluðu og lesnu máli.

Hljóðavitund

Hljóðavitund er færni við að greina og þekkja hljóð bókstafa og nýta til að lesa úr táknum þeirra. Hljóðavitund byggir á hljóðkerfi tungumála og gegnir mikilvægu hlutverki í tali og lestri.

Orðaforði

Orðaforði felur í sér að börn læri að orð tákni ákveðnar hugmyndir eða hugtök. Það skiptir máli að börn læri mörg orð og hafi djúpa þekkingu á merkingu þeirra.

Lesfimi

Lesfimi byggir á sjálfvirkni, nákvæmni og hrynrænum þáttum tungumálsins.  Með lesfimi er átt við börn lesi af nákvæmni, jöfnum hraða og viðeigandi hendingum.

Læsi

Hlustunarskilningur

Hlustunarskilningur eða málskilningur felur í sér að skilja merkingu orða og setninga. Í honum felst skilningur á töluðu máli, hlustun og hljóðræn úrvinnsla.