Stuðningur Miðju máls og læsis við skóla- og frístundastarf
Miðja máls og læsis heldur reglulega námskeið sem tengjast máli, læsi, fjöltyngi og fjölmenningu.
Fræðsla og ráðgjöf um mál og læsi
Miðja máls og læsis býður starfsfólki í skóla- og frístundastarfi upp á fræðslu og ráðgjöf um mál og læsi.
Innihald, lengd og tegund fræðslu er sniðin að þörfum hvers starfsstaðar í samráði við stjórnendur.
Ráðgjöf á vettvang skóla- og frístundastarfs er alltaf skipulögð með hliðsjón af áskorunum.
Fræðsluerindi fyrir starfsfólk
Ráðgjafar Miðju máls og læsis geta skipulagt fræðsluerindi eða vinnustofur fyrir starfsfólk í skóla- og frístundastarfi Reykjavíkur. Stundum er óskað eftir fræðsluerindum fyrir allt starfsfólk en oft er fræðsla skipulögð fyrir hóp starfsfólks sem sinnir afmörkuðum verkefnum eða hlutverki.
Dæmi um fræðsluerindi:
- Málumhverfi barna og unglinga
- Ný á Íslandi
- Samskipti þvert á tungumál
- Fjöltyngi og stuðningur við börn og unglinga sem læra íslensku sem annað tungumál
- Brýr milli menningarheima
- Menningarnæmi og fjölmenningarlegt skóla- og frístundastarf
- Hagnýtar leiðir til að styðja við mál og læsi
- Rýnum saman í gögn og finnum leiðir
- Hvernig á að hlusta á nemendur lesa?
Fyrir foreldra
Hægt er að óska eftir því að ráðgjafar Miðju máls og læsis komi og miðli upplýsingum til foreldrahópa.
Dæmi um erindi:
- Máluppeldi barna og ungmenna
- Læsi og heimalestur
- Niðurstöður rannsókna og hagnýt ráð til foreldra
- Fjölmenning, fordómar og íslenska skólakerfið